Nýtt HSK met í maraþonhlaupi

Valdimar Bjarnason
Valdimar Bjarnason

Sunnudaginn 21. október setti Valdimar Bjarnason úr Þór í Þorlákshöfn HSK-met í maraþoni í Amsterdam.

Sunnudaginn 21. október setti Valdimar Bjarnason úr Þór í Þorlákshöfn HSK-met í maraþoni í Amsterdam.

Valdimar hljóp maraþonið á 3:00:46 klst. Þessi árangur er glæsilegur, en þetta var í fyrsta skipti sem Valdimar hleypur maraþon í keppni.  HSK metið átti Sigurður Ingvarsson og var það 3:07:34 klst sett í Mývatnsmaraþoni 1998.

Svo skemmtilega vill til að HSK met Valdimars, er hundraðasta HSK metið sem sett er utanhúss í ár.

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?