Nýtt kort af Þorlákshöfn tilbúið

Nýtt kort af Þorlákshöfn er tilbúið en það er ætlað til upplýsinga fyrir ferðamenn sem og heimamenn en það hefur verið í vinnslu í rúmt ár.
Kortið er skemmtilega frábrugðið hefðbundnum upplýsingakortum en áherslan var á að hafa það lifandi og skemmtilegt.
Kort af Ölfusinu öllu er á lokastigi og verður birt í lok þessa mánaðar.

Samhliða þessu verða kortin sett upp á upplýsingaskiltið sem stendur við innkeyrsluna inn í Þorlákshöfn. 
Vinna er í gangi við að gera kortin á heimasíðu Ölfuss gagnvirk og verður klárt á næstu misserum. Á skiltin verður settur hlekkur eða QR kóði svo ferðamenn geti farið inn á heimasíðu Ölfuss og fundið nýjustu upplýsingar um þjónustu í sveitarfélaginu.
Einnig er til skoðunar að setja fleiri skilti víðar í sveitarfélaginu.

Hægt er að nálgast kortin á heimasíðunni undir Mannlíf - gestir og gangandi

Þorlákshöfn upplýsingakort

Hönnunin á kortinu var í höndum ARGH Grafísk hönnun.
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?