Óvænt mætir fyrsta skemmtiferðaskipið til Þorlákshafnar, fimmtudaginn 14. júní.

Kæru íbúar Ölfuss. 

Mikil vinna hefur farið í það að fá skemmtiferðaskip til að leggja að í Þorlákshöfn. Skipið sem búið var að bóka í sumar breytti sínum áætlunum og afbókaði og því ekkert annað að gera en að halda áfram að vinna að því að fá bókanir. 

Seint í gær var ljóst að skipið Ocean Diamond þurfti að breyta sínum ferðaáætlunum og mun því leggja að í Þorlákshöfn, fimmtudaginn 14. júní kl. 11.30. 

Þar sem um er að ræða fyrsta skipið þá langar okkur til að biðja alla þá íbúa sem geta að kíkja niður á höfn á morgun um 11.30 og taka vel á móti gestunum. Þetta eru um 200 farþegar og um 100 manns í áhöfn. Flestir farþegar fara í ferð en einhverjir verða kyrrir í bænum og áhöfnin fer ekkert.
Það er því mikilvægt að farþegar upplifi að þeir séu velkomnir og að íbúar sýni gestum vinskap og jafnvel spjalli við þá sem þeir rekast á. 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?