Saga Þorlákshafnar komin úr prentun

Björn Pálsson, handritshöfundur með bókina góðu
Björn Pálsson, handritshöfundur með bókina góðu

Í dag er merkisdagur í Þorlákshöfn þar sem bók Björns Pálssonar um Sögu Þorlákshafnar, er komin út. Af tilefni útgáfunnar er efnt til útgáfuveislu á Bæjarbókasafni Ölfuss kl 17:00 föstudaginn 27. nóvember.

Það var árið 2001 sem ákveðið var að fá Björn Pálsson, þá héraðsskjalavörð Árnessýslu, til að skrifa sögu Þorlákshafnar frá árinu 1930 til 1990.

Bókin spannar spennandi tímabil í sögu staðarins, þar sem ungt og athafnasamt fólk ákveður að koma til Þorlákshafnar, byggja hús og flytja hingað með fjölskyldur sínar. Smám saman verður til þorp sem býr að athafnagleði, virku félagslífi, framtakssemi og samtakamætti þeirra sem hingað fluttu.

Á bakhlið bókarinnar skrifar handritshöfundur „hér er brugðið upp myndum af framkvæmdum í Þorlákshöfn, fyrirtækjum, félögum og lífsháttum íbúa. Hundruð ljósmynda og teikninga hjálpa lesanda að rata þær söguslóðir. Skráðir íbúar árið 1950 voru fjórir, 523 árið 1970 og 1218 við sögulok árið 1990. Nefnd eru öll íbúðarhús byggð á 20 árum frá 1951, íbúa getið og hvaðan þeir komu. Fjölskyldumyndir eru af nær öllum þeim sem þar höfðu tekið sér búsetu fyrir árið 1971 og teljast því frumbyggjar Þorlákshafnar.“

 Bókin verður til sölu á sérstöku útgáfutilboði fram að jólum á Bæjarbókasafni Ölfuss í Þorlákshöfn.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?