Sigmar Björgvin Árnason hefur verið ráðinn sem nýr skipulags og byggingarfulltrúi sveitarfélagsins

Á fundi bæjarstjórnar 28. júní sl. var Sigmar Björgvin Árnason ráðinn sem nýr skipulags- og byggingarfulltrúi í Ölfusi. 

Sigmar er með BSc í byggingarfræði  og hefur töluverða reynslu en hann starfar í dag sem byggingafulltrúi hjá Grindavíkurbæ og hefur gert það frá árinu 2008. 

Þrír einstaklingar sóttu um stöðuna en það voru:

  • Björn Guðmundsson
  • Gunnlaugur Jónasson
  • Sigmar Árnason

Sigmar mun hefja störf hjá sveitarfélaginu á haustmánuðum og er hann boðinn velkominn til starfa.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?