Smyril Line Cargo hefur vikulegar siglingar milli Þorlákshafnar og Rotterdam

Smyril-Line-Cargo-Logo-300x304px
Smyril-Line-Cargo-Logo-300x304px

Færeyska skipafélagið Smyril Line Cargo, sem á og rekur farþega- og vöruflutningaferjuna Norrænu, hefur ákveðið að hefja beinar siglingar milli Þorlákshafnar og Rotterdam. Engar breytingar eru fyrirhugaðar á rekstri Norrænu og einungis verður boðið upp á vöruflutninga á nýju siglingaleiðinni. Fest hafa verið kaup á 19 þúsund tonna ferju sem tekur 90 tengivagna og 500 bíla í hverri ferð og á hún að hefja siglingar í byrjun apríl 2017. Ferjusiglingarnar munu stórauka umsvif í Þorlákshöfn og væntingar eru um að þær stuðli að enn frekari vexti og atvinnuuppbyggingu á svæðinu.

Fréttatilkynning

20.12.2016

Smyril Line Cargo hefur vikulegar siglingar milli Þorlákshafnar og Rotterdam

Færeyska skipafélagið Smyril Line Cargo, sem á og rekur farþega- og vöruflutningaferjuna Norrænu, hefur ákveðið að hefja beinar siglingar milli Þorlákshafnar og Rotterdam. Engar breytingar eru fyrirhugaðar á rekstri Norrænu og einungis verður boðið upp á vöruflutninga á nýju siglingaleiðinni. Fest hafa verið kaup á 19 þúsund tonna ferju sem tekur 90 tengivagna og 500 bíla í hverri ferð og á hún að hefja siglingar í byrjun apríl 2017. Ferjusiglingarnar munu stórauka umsvif í Þorlákshöfn og væntingar eru um að þær stuðli að enn frekari vexti og atvinnuuppbyggingu á svæðinu.

Með tilkomu nýju ferjunnar stóreykst þjónusta Smyril Line Cargo við íslenska markaðinn og tengslin við suðvesturhorn landsins eflast. Siglt verður vikulega á milli Þorlákshafnar og Rotterdam, með viðkomu í Færeyjum á heimleiðinni, og styttist flutningstími fyrir bæði inn- og útflutning frá því sem nú er.

Með stysta flutningstímann til og frá landinu

„Flutningstíminn hjá okkur verður sá stysti sem boðið er upp á í sjóflutningum til og frá landinu. Útflutningsvörur sem fara með ferjunni frá Þorlákshöfn á föstudagskvöldi verða tilbúnar til afhendingar um alla Evrópu þremur dögum síðar, eða á þriðjudagsmorgni, en innflutningsvörur sem fara frá Rotterdam á mánudagskvöldi verða tilbúnar til afhendingar á Íslandi á föstudagsmorgni,“ segir Linda Björk Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri Smyril Line Cargo á Íslandi.

Nýja siglingaleiðin skapar einnig tengimöguleika við önnur markaðssvæði, s.s. Pólland og Eystrasaltslöndin, með vöruumskipun í Færeyjum þaðan sem Smyril Line Cargo er með tvær vöruflutningaferjur í áætlunarsiglingum til St. Pétursborgar og Eystrasaltslanda.

Tekur 90 tengivagna og 500 bíla í ferð

Áætlað er að ferjusiglingarnar milli Þorlákshafnar og Rotterdam hefjist í byrjun apríl 2017 og hefur Smyril Line Cargo fest kaup á 19 þúsund tonna ferju, sem hefur fengið nafnið Mykines, til að annast þær. Hún er ríflega 138 metra löng, tæplega 23 metra breið og getur flutt 90 tengivagna og 500 bíla í hverri ferð. Ferjan var smíðað árið 1996 í UMOE skipasmíðastöðinni í Noregi og var áður í eigu finnska skipafélagsins Bore, sem er hluti af Spliethoff samstæðunni. Þá hét hún Auto Baltic og var m.a. í siglingum á Eystrasaltinu. Ferjan verður skráð í Færeyjum og verða 24 í áhöfn.

Umsvif stóraukast í Þorlákshöfn

Smyril Line Cargo er fyrsta skipafélagið sem hefur reglubundnar vikulegar millilandasiglingar til Þorlákshafnar og eru væntingar um að þær muni stuðla að enn frekari vexti og atvinnuuppbyggingu á svæðinu.

„Umsvif við höfnina munu stóraukast og ljóst að störfum mun fjölga í sveitarfélaginu, bæði beint og óbeint, en við erum vel í stakk búin til að takast á við þær áskoranir sem ferjusiglingarnar hafa í för með sér,“ segir Gunnsteinn R. Ómarsson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Ölfuss.

Miklar breytingar hafa verið gerðar á höfninni í Þorlákshöfn á undanförnum árum til að skapa betri aðstæður fyrir hafsækna starfsemi og frekari framkvæmdir eru á döfinni. Höfnin hefur m.a. verið dýpkuð til muna og byggð verður upp aðstaða til að taka á móti stórum flutningaskipum. Fullbúin frystigeymsla er staðsett við höfnina og þar er mikið landrými og lausar byggingalóðir fyrir atvinnustarfsemi. Frá Þorlákshöfn eru góðar og greiðar samgöngur til allra átta og aðeins um 40 km til Reykjavíkur og 85 km að Keflavíkurflugvelli eftir Suðurstrandarvegi.

Þjónusta Smyril Line Cargo

Smyril Line Cargo er eina skipafélagið sem býður upp á ferjuskipaflutninga á Norður Atlantshafi, eða svokallaða Ro/Ro (e. Roll on-Roll off) vöruflutninga, þar sem varan er flutt í tengivögnum sem keyrðir eru um borð í skipin. Það tryggir bæði vandaða og örugga vörumeðhöndlun, hvort sem um er að ræða frysti- eða kælitengivagna eða flutning á öðrum varningi, s.s. fólksbílum og stórum ökutækjum, sem þarf þá ekki að hífa um borð.

Smyril Line Cargo var stofnað árið 1982 og hefur frá þeim tíma siglt með farþega til og frá Íslandi. Allt frá því að Norræna var tekin í notkun árið 2003 hefur félagið boðið íslenskum inn- og útflytjendum upp á Ro/Ro vöruflutninga og hafa þeir aukist umtalsvert frá 2009, eftir að ferjan hóf siglingar til Seyðisfjarðar allt árið. Engar breytingar eru fyrirhugaðar á siglingum Norrænu milli Seyðisfjarðar, Færeyja og Danmerkur.

 

Nánari upplýsingar veita:

Linda Björk Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri Smyril Line Cargo á Íslandi, s. 470 2810 / 860 9920, linda@cargo.fo

Gunnsteinn R. Ómarsson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Ölfuss, s. 860 7630, gunnsteinn@olfus.is

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?