Stóri Plokkdagurinn 2026

Stóri plokkdagurinn verður haldinn sunnudaginn 26. apríl næstkomandi.

Stóri plokkdagurinn er árlegur viðburður sem er skipulagður af félagsskapnum Plokk á Íslandi í samstarfi við Rótarýhreyfinguna á Íslandi.

Sveitarfélagið Ölfus hvetur íbúa í Ölfusi til virkrar þátttöku í deginum.  Það er tilvalið að taka hressilega til hendinni í sínu næsta nágrenni.

Margar hendur vinna létt verk!

Við plokkum því að........

  • Við viljum búa í fallegu umhverfi
  •  Frábær hreyfing fyrir alla aldurshópa
  • Við viljum vera góðar fyrirmyndir
  • Við viljum hvetja til samvinnu með nágrönnum

Hægt verður að nálgast ruslapoka á Gámasvæðinu við Norðurbakka föstudaginn 24. apríl frá kl. 13:00 - 18:00 og laugardaginn 25. apríl frá kl. 10:00 - 14:00

Hvað þarf að hafa:

  • Glæra plastpoka.  Best er að hafa 2 poka, setja plast í einn og allt annað í hinn.
  • Snæri eða bensli til að loka plastpokunum svo ekkert fjúki úr þeim þegar búið er að fylla þá.
  • Plokktangir eru ágætar, ekki nauðsynlegar.

Það verða staðsett 5 kör í Þorlákshöfn:

  • Við malarplanið við Íþróttahúsið
  • Á Selvogsbraut milli Eyjahrauns og Setbergs
  • Við Rásarmóa við hliðina á Krónunni
  • Á planinu við Þjónustumiðstöð
  • Við Katlahraun

Einnig er hægt að safna saman pokum á ákveðnum stöðum og senda myndir á david@olfus.is 

Körin:

 

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?