Styrkjum úthlutað úr Lista- og menningarsjóði Ölfuss

Menningarnefnd Ölfuss hefur úthlutað styrkjum til fjögurra verkefna úr Lista- og menningarsjóði Ölfuss

 Menningarnefnd Ölfuss hefur úthlutað styrkjum úr Lista- og menningarsjóði Ölfuss. Þetta er í sjötta skipti sem styrkjum er úthlutað úr sjóðnum. Alls bárust fjórar umsóknir, samtals að upphæð 690.000 kr. Nefndin hafði til úthlutunar 285.000 krónur. Ákveðið var að styrkja alla umsækjendur enda öll verkefnin verðug og umsóknir vel unnar.

Ungmennaráð Ölfuss sótti um styrk til að halda ungmennakvöld í desember. Ákveðið var að styrkja verkefnið um 60.000 krónur sem varið verður til að fá aðkeyptan uppistandara svo dagskrá kvöldsins verði sérlega vegleg. Skarphéðinn Haraldsson sótti um styrk fyrir útgáfu geisladisksins “Syngjum gegnum lífið” sem hann er að vinna að um þessar mundir. Ákveðið var að styrkja útgáfuna um 75.000 krónur, en Skarphéðinn semur bæði ljóð og lög á disknum. Leikfélag Ölfuss fær 75.000 króna styrk til útgáfu leikskrár, veggspjalda og leikmyndar í tengslum við sýninguna Stútungasögu sem nú er á fjölunum í Versölum, Ráðhúsi Ölfuss. Að lokum var ákveðið að styrkja glervinnustofuna Hendur í höfn um 75.000 krónur til að niðurgreiða glerlistanámskeið barna og ungmenna sem haldin verða í janúar - febrúar og mars – apríl.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?