Sveitarfélagið Ölfus fær styrk til áframhaldandi uppbyggingar í Reykjadal

Reykjadalur
Reykjadalur
Nýverað var tilkynnt um úthlutanir styrkja úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Lesa má á tilkynningu á vef Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins um úthlutun styrkja en Sveitarfélagið Ölfuss fékk 10 milljóna króna styrk til áframhaldandi uppbyggingu í Reykjadal.

Nýverað var tilkynnt um úthlutanir styrkja úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Lesa má tilkynningu á vef Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins um úthlutun styrkja, en Sveitarfélagið Ölfuss fékk 10 milljóna króna styrk til áframhaldandi uppbyggingu í Reykjadal.

Um er að ræða styrk til 5. áfanga í uppbyggingu göngustíga í Reykjadal ásamt smíði göngubrúar við nýjan hver sem opnast hefur rétt við göngustíg og veldur töluverðri hættu. Hluti styrkjar rennur til frumhönnunar á nýrri salernisaðstöðu.

Reykjadalur er á lista Stjórnstöðvar ferðamála yfir staði þar sem brýnt er að grípa til aðgerða til að tryggja öryggi á ferðamannastöðum, því er um forgangsverkefni að ræða vegna öryggis við hveri og slits og álags á náttúru dalsins.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?