Um 200 leyndardómsviðburðir á Leyndardómum Suðurlands

leyndardomalogo-dagsten2014
leyndardomalogo-dagsten2014

Kynningarátakið Leyndardómar Suðurlands hefst föstudaginn 28. mars nk. kl. 14:00

Föstudaginn 28. mars k. 14:00 hefst kynningarátakið Leyndardómar Suðurlands þegar ráðherrar Suðurkjördæmis, þau Ragnheiður Elín Árnadóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson, ásamt Gunnari Þorgeirssyni, formanni Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga mæta við Litlu Kaffistofuna og klippa á borða og opna þar með 10 daga hátíð á Suðurlandi.

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, sem standa að átakinu bjóða frítt í Strætó alla þessa daga frá Reykjavík um allt Suðurland. 

Tæplega 200 viðburðir eru skráðir til leiks á leyndardómunum og fór þátttakan langt fram úr björtustu vonum skipuleggjenda.

Allar upplýsingar um viðburði eru að finna á vefsíðunni.

Til að skoða þá viðburði sem eru í boði í Ölfusi er hægt að smella.

Góða skemmtun á Leyndardómum Suðurlands 2014.

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?