Varðandi aðventudagskrá í kvöld

Jólatré
Jólatré

Veðurspá morgundagsins er ekki til þess fallin að efna til tónlistarflutnings og söngs úti við jólatréð. Þessvegna hefur verið ákveðið að fresta því að tendra ljós á jólatrénu á ráðhústorgi fram á sunnudaginn 6. desember klukkan 18:00. Hinsvegar verður markaðsstemning hjá fyrirtækjum og stofnunum í bænum þrátt fyrir veður.

Veðurspá dagsins er ekki til þess fallin að efna til tónlistarflutnings og söngs úti við jólatréð. Þessvegna hefur verið ákveðið að fresta því að tendra ljós á jólatrénu á ráðhústorgi fram á sunnudaginn 6. desember klukkan 18:00.

Hinsvegar hafa fyrirtæki og markaðsfólk ákveðið að halda sínu striki og vera með kvöldopnun á auglýstum tíma. Meðal þess sem verður í boði er:

Opið hús hjá VISS í Unubakkanum, markaður hjá Kvenfélagi Þorlákshafnar, opið á Snyrtistofu Fríðu, félagi eldri borgara og fleirum í anddyri ráðhússins og á bókasafninu.

Pizzahlaðborð í Meitlinum

Markaðsstemning í Kompunni hárklippistofu og markaður í ganginum fyrir framam apótekið.

Jólakvöld í Hendur í höfn, kaffihúsi frá kl. 18:00-22:00

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?