Við færum þær gleðifréttir að Píeta samtökin opna Píetaskjól í Ölfusi 5. nóvember

Fagaðili Píeta fer í hverjum mánuði og tekur viðtöl í nýju Píeta skjóli í Hafnarbergi 1 í Þorlákshöfn. Við hvetjum íbúa í Ölfusi til að hringja í hjálparsíma Píeta 1799 og bóka viðtal.

Við biðjum ykkur að láta orðið berast til fólks með sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaða og aðstandenda þeirra, sem og syrgjenda sem hafa misst í sjálfsvígi.

Píeta samtökin bjóða einnig upp á meðferð í gegnum fjarviðtöl, fyrir þau sem ekki komast á staðinn. Svo er Píeta síminn opinn, dag og nótt, alla daga ársins.

 

Hefurðu kynnt þér þjónustu Píeta?

Píeta samtökin reka hjálparsíma allan sólarhringinn, alla daga ársins. Símanúmerið er 1799. Hjálparliðar veita öllum þeim sem hringja ráðgjöf, bóka í viðtal eða vísa í önnur úrræði, sé þess þörf.

Píeta veita gagnreynda og fría meðferð fyrir þá sem eru í sjálfsvígshættu eða sjálfsskaða og stuðning við aðstandendur þeirra og aðstandendur sem hafa misst. Þjónustan er fyrir 18 ára og eldri og er gjaldfrjáls.

Meðferðaraðilar Píeta eru allir með viðurkennt starfsleyfi landlæknis á sviði geðheilbrigðis; sálfræðingar, félagsráðgjafar, iðjuþjálfar og læknir.

Píetasíminn þjónustar allt landið og einnig starfrækja samtökin Píetaskjól víða um land, í Reykjavík, á Ísafirði, Akureyri, Reyðarfirði og í Ölfusi. Stuðningshópar fyrir aðastandendur eru starfræktir á Akureyri, Garðabæ og í Reykjavík.

Nánari upplýsingar um hópastarf og þjónustu Píeta er að finna á vefnum okkar: https://pieta.is/

 

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?