Vorlegt á bókasafninu í Þorlákshöfn

Rósa Traustadóttir með sýningu í Þorlákshöfn
Rósa Traustadóttir með sýningu í Þorlákshöfn
Fimmtudaginn 6. mars opnar Rósa Traustadóttir sýningu á vatnslitamyndum sínum í Gallerí undir stiganum

Fimmtudaginn 6. mars opnar Rósa Traustadóttir sýningu á vatnslitamyndum sínum í Gallerí undir stiganum, sýningarrými Bæjarbókasafns Ölfuss í Þorlákshöfn.

Rósa býr á Selfossi og er bókasafnsfræðingur, heilsuráðgjafi og jógakennari.  Hún vinnur við þetta alltsaman, starfar á bókasafninu á Selfossi og á og rekur fyrirtækið Hugform þar sem hún býður upp á margvísleg námskeið, ráðgjöf og fræðslu.  Í frítímanum fæst Rósa síðan m.a. við að mála.  Fyrstu einkasýningu sína hélt Rósa í desember síðastliðnum og sýndi þá myndir í Listagjánni á bókasafninu á Selfossi.  Nú ætlar hún að leyfa Þorlákshafnarbúum og gestum þar að njóta myndanna og koma með vorið í bæinn.  Innblástur í myndirnar sækir Rósa í náttúruna en litirnir fá að renna saman við hugleiðslu og jóga.

Formleg opnun er sem fyrr segir fyrsta fimmtudag í mars klukkan 18:00.  Af tilefni opnunar verður boðið upp á kaffi og súkkulaði og eru allir velkomnir.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?