112 dagurinn í dag

Í dag, miðvikudaginn 11. febrúar verður bláljósaakstur á flestum þéttbýlisstöðum sem og í uppsveitum á Suðurlandi kl. 11:20 með þátttöku slökkviliða, sjúkraflutninga HSU, björgunarsveita á hverjum stað og Lögreglunnar á Suðurlandi.

Neyðarlínan heldur upp á 1-1-2 daginn þann 11. febrúar á hverju ári því að dagsetningin 11. 2. minnir okkur á neyðarnúmer allra landsmanna, 1-1-2. Það er mikilvægt að minna á þetta númer af því þetta er eina númerið sem landsmenn þurfa að þekkja í neyð.

Í ár minnumst við þess að 30 ár eru síðan samræmt neyðarsímanúmer var tekið upp á Íslandi og fyrsta símtalinu í 1-1-2 svarað 1. janúar 1996. Neyðarverðir taka á móti öllum erindum sem berast 1-1-2 og vinna úr þeim. Þau veita stuðning og leiðbeiningar og sjá til þess að málin fari í réttan farveg.

Til þess að samstarf innhringjanda og neyðarvarðar gangi sem farsællegast er gagnlegt að vera viðbúinn að svara eftirfarandi spurningum þegar hringt er í 1-1-2.

· Hvar er atburðurinn?

· Hver ert þú?

· Hvað gerðist?

· Hvenær gerðist atburðurinn?

Sjá frétt 112 dagurinn 2026

Dagur íslenska táknmálsins er einnig haldinn hátíðlegur þann 11. febrúar ár hvert og verður dagskráin túlkuð á táknmáli.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?