Á alþjóðadegi safna laugard. 18. maí Vinnustofa í vatnslitamálun og sýningarspjall

Fréttatilkynning 14. maí 2019

Á alþjóðadegi safna laugard. 18. maí  Vinnustofa í vatnslitamálun og sýningarspjall

Söfn eru í stöðugri endurnýjun í viðleitni sinni til að verða gagnvirkari, áhorfendamiðaðri, samfélagslegri, sveigjanlegri, aðlögunarhæfari og hreyfanlegri stofnanir. Þau hafa breyst í menningarmiðstöðvar sem skapa umhverfi þar sem sköpunargleði er sameinuð þekkingu og þar sem gestir geta einnig skapað með öðrum, deilt og átt samskipti. Þetta er fókusinn á alþjóðlega safnadeginum 18. maí og dagskrá Listasafns Árnesinga er í samræmi við hann. Á boðstólum eru tvær sýningar, Einu sinni var... og Mismunandi endurómun, og tveir dagskrárliðir sem gestir geta tekið þátt í, vinnustofa í vatnslitamálun og leiðsögn/sýningarspjall um sýninguna Mismunandi endurómun.

Kirsten Fugl og Ingelise Flensborg, sem nú dvelja í listamannahúsinu í Hveragerði, eru myndlistarmenn sem líka hafa langa reynslu af því að kenna myndgreinakennurum. Þær munu leiðbeina byrjendum sem lengra komnum við að virkja sköpunargleði sína með vatnslitum laugard. 18. maí kl. 13-15. Fyrstur kemur fyrstur fær því í vinnustofunni geta aðeins 12 tekið þátt og eru þátttakendur beðnir um að koma með sína liti og áhöld þó einnig verði pappír og einhverjir litir til staðar. Tilvallið er líka að skoða sýninguna Einu sinni var... þar sem sjá má vatnslitaverk eftir Ásgrím Jónsson sem þekktur er fyrir færni með vatnsliti.

Kirsten Fugl leiddi kennslufræðina við Hákskólann í Vordingvorg í Danmörku og hefur kynnt sér vel möguleika tjáningar með vatnslitum og áhrif litarefna hvert á annað í fljótandi formi. Hún segir eiginleika einstakra litarefni ólíka, sum litarefni safnast saman og gefa öðrum pláss meðan önnur dreifa úr sér og ýta öðrum litum frá. Ingelise Flensborg var í 6 ár lektor við Háskólann í Árósum og 25 ár við Kennaraháskólann í Kaupmannahöfn með áherslu m.a. á list- og safnakennslu og er höfundur nokkurra bóka á sínu sviði.

Síðn mun Inga Jónsdóttir, sýningarstjóri sýningarinnar Mismunandi endurómun, ganga um hana með gestum kl. 15, svara spurningum og segja frá sýningunni, verkunum og höfundum þeirra. Listamennirnir sex eru allir búsettir í Þýskalandi og reka þar eigin vinnustofur, en einn þeirra er Sigrún Ólafsdóttir. Stærð og umfang verkanna er mjög mismunandi, en sýningin snýst um það að verkin nái að kallast á innbyrðis og við húsakynni safnsins. Fjölbreytileikinn felst í hugmyndalegri útfærslu verkanna sem eru unnin með blandaðri tækni, ýmist ný eða eldri verk, skúlptúrar, málverk, textíll og innsetningar af ýmsum toga.

Nánari upplýsingar:

Inga Jónsdóttir safnstjóri,  sími 895 1369, inga@listasafnarnesinga.is   

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?