Afreks – og styrktarsjóður Sveitarfélagsins Ölfuss

Íþrótta – og tómstundanefnd Sveitarfélagsins Ölfuss auglýsir  styrki úr Afreks – og styrktarsjóði  Sveitarfélagsins Ölfuss.

Markmið sjóðsins er m.a. að veita afreksíþróttafólki í hóp/einstaklingsíþróttum í  Sveitarfélaginu Ölfusi fjárhagslegan styrk  vegna æfinga og/eða keppni, og þannig skapa sem best tækifæri til að stunda íþrótt sína í heimabyggð eða annarstaðar eftir atvikum. Einnig eru veittir styrkir vegna menntunar þjálfara/leiðbeinenda.

Úthlutun styrkja fer fram í október nk.

Sótt er um styrkinn rafrænt á heimasíðu Sveitarfélagsins Ölfuss - umsókn

Umsóknir um styrki úr sjóðnum  þurfa að berast fyrir 1. október næstkomandi.

Nánari upplýsingar veitir Ragnar Sigurðsson Íþrótta – og tómstundafulltrúi,
í síma 480 – 3891 eða á netfanginu ragnar@olfus.is

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?