Afreks – og styrktarsjóður Sveitarfélagsins Ölfuss

 

Afreks – og styrktarsjóður Sveitarfélagsins Ölfuss

 

 

Íþrótta – og æskulýðsnefnd Sveitarfélagsins Ölfuss auglýsir  styrki úr Afreks – og styrktarsjóði  Sveitarfélagsins Ölfuss.

 

 

Markmið sjóðsins er m.a. að veita afreksíþróttafólki í hóp/einstaklingsíþróttum í  Sveitarfélaginu Ölfusi fjárhagslegan styrk  vegna æfinga og/eða keppni, og þannig skapa sem best tækifæri til að stunda íþrótt sína í heimabyggð eða annarstaðar eftir atvikum. Einnig eru veittir styrkir vegna menntunar þjálfara/leiðbeinenda.

 

Úthlutun styrkja fer fram í nóvember nk.

 

Hægt er að nálgast umsóknareyðublað á heimasíðu eða á skrifstofu

Sveitarfélagsins Ölfuss.

Umsóknir um styrki úr sjóðnum  þurfa að berast til skrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss, Ráðhúsinu Hafnarbergi 1 í Þorlákshöfn, fyrir 1. nóvember næstkomandi, merkt:

AFREKS – OG STYRKTARSJÓÐUR SVEITARFÉLAGSINS ÖLFUSS – UMSÓKN.

 

Nánari upplýsingar veitir Ragnar Sigurðsson Íþrótta – og æskulýðsfulltrúi,

í sima 480 – 3891 eða á netfanginu ragnar@olfus.is

 

 

 

 

                                                                                           Sveitarfélagið Ölfus

                                                                                          Íþrótta – og æskulýðsnefnd 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?