Álagning fasteignagjalda 2015

Merki Ölfuss
Merki Ölfuss

Álagningu fasteignagjalda í Sveitarfélaginu Ölfusi fyrir árið 2015 er nú lokið.

Sami háttur verður við innheimtu gjaldanna og á síðasta ári þ.e.  sveitarfélagið mun ekki senda út álagningarseðla fyrir fasteignagjöldum til einstaklinga yngri en 67 ára.

Sami háttur verður við innheimtu gjaldanna og á síðasta ári þ.e.  sveitarfélagið mun ekki senda út álagningarseðla fyrir fasteignagjöldum til einstaklinga yngri en 67 ára.


Álagningarseðlar eru birtir rafrænt á vefsiðunni 
www.island.is  undir „Mínar síður“ og er  innskráning  með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.

Kröfur vegna fasteignagjalda birtast sem fyrr í netbanka greiðanda.

Einstaklingar 67 ára og eldri fá  senda álagningar- og greiðsluseðla auk þess sem fyrirtæki og stofnanir fá senda álagningarseðla.
Þeir aðilar undir 67 ára sem þess óska geta fengið heimsenda álagningar- og greiðsluseðla en verða þá að hafa samband við skrifstofu sveitarfélagsins í síma 480-3800 eða á póstfangið 
sigrun@olfus.is

Skrifstofa sveitarfélagsins veitir allar nánari upplýsingar um þetta fyrirkomulag svo og álagningu gjaldanna sjálfra.

 

 

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?