Álagning fasteignagjalda 2018

Merki Sveitarfélagsins Ölfuss
Merki Sveitarfélagsins Ölfuss

Álagningu fasteignagjalda í Sveitarfélaginu Ölfusi fyrir árið 2018 er nú lokið.

Sami háttur verður við innheimtu gjaldanna og síðustu ár þ.e.  sveitarfélagið mun ekki senda út  prentaða álagningarseðla fyrir fasteignagjöldum til einstaklinga sem fæddir eru 1947 eða síðar.
Álagningarseðlar eru birtir rafrænt á vefsiðunni island.is  undir „Mínar síður“ og er  innskráning  með veflykli ríkisskattstjóra eða rafrænum skilríkjum.
Kröfur vegna fasteignagjalda birtast sem fyrr í netbanka greiðanda.
Einstaklingar 72 ára og eldri fá  senda álagningar- og greiðsluseðla auk þess sem fyrirtæki og stofnanir fá senda álagningarseðla í pósti.
Þeir aðilar undir 72 ára aldurs sem þess óska geta fengið heimsenda álagningar- og greiðsluseðla en verða þá að hafa samband við skrifstofu sveitarfélagsins í síma 480-3800 eða á póstfangið sigrun@olfus.is

Skrifstofa sveitarfélagsins veitir allar nánari upplýsingar um þetta fyrirkomulag svo og álagningu gjaldanna sjálfra.

                                                                                        Bæjarritari

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?