Álagning fasteignagjalda 2020

Álagningu fasteignagjalda í Sveitarfélaginu Ölfusi fyrir árið 2020 er nú lokið.

Sami háttur verður viðhafður við  innheimtu gjaldanna og síðustu ár þ.e.  sveitarfélagið mun ekki senda út  prentaða álagningarseðla fyrir fasteignagjöldum til einstaklinga sem fæddir eru 1946 eða síðar.
Álagningarseðlar eru birtir rafrænt á vefsíðunni www.island.is   undir „Mínar síður“ og er  innskráning  með veflykli ríkisskattstjóra eða rafrænum skilríkjum.
Kröfur vegna fasteignagjalda birtast sem fyrr í netbanka greiðanda.
Einstaklingar 74 ára og eldri fá  senda álagningar- og greiðsluseðla auk þess sem fyrirtæki og stofnanir fá senda álagningarseðla í pósti.
Þeir aðilar sem þess óska geta fengið heimsenda álagningar- og greiðsluseðla en verða þá að hafa samband við skrifstofu sveitarfélagsins í síma 480-3800 eða á póstfangið kolla@olfus.is 

Skrifstofa sveitarfélagsins veitir allar nánari upplýsingar um þetta fyrirkomulag svo og álagningu gjaldanna sjálfra.

                                                                                     Þorlákshöfn 25. janúar 2020.

                                                                                     Sveitarfélagið Ölfus

 

 

                                                                                                 

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?