Ályktun frá aðalfundi Bandalags íslenskra leikfélaga

eg_elska6
eg_elska6

Um síðustu helgi hittist leiklistafólk af öllu landinu á fundi í Ísafirði. Frá Þorlákshöfn fóru nokkrir félagar úr Leikfélagi Ölfuss. Á fundinum var tekin saman ályktun sem send hefur verið til allra helstu fjölmiðla landsins og ráðamanna. Ályktunin birtist hér fyrir neðan.

Um síðustu helgi hittist leiklistafólk af öllu landinu á fundi í Ísafirði. Frá Þorlákshöfn fóru nokkrir félagar úr Leikfélagi Ölfuss. Á fundinum var tekin saman ályktun sem send hefur verið til allra helstu fjölmiðla landsins og ráðamanna. Ályktunin birtist hér fyrir neðan.

 

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga, haldinn í Edinborgarhúsinu á Ísafirði 5.-6. maí 2012 ályktar:

 

Starf áhugafólks að listsköpun er mikilvægur þáttur í öllum heilbrigðum samfélögum. Það á ekki síst við um listgreinar þar sem hópar fólks vinna að sameiginlegri rannsókn og tjáningu á mannlífinu, listgreinar á borð við leikhúsið.

 

Það er almennt viðurkennt að íslenskt áhugaleikhús er miðlægt í íslenskri leiklist og íslenskri menningu. Stór hluti Íslendinga á sína fyrstu snertingu við töfra leikhússins meðal áhugamanna, hvort heldur er sem áhorfendur eða þátttakendur.

 

Með þátttöku í starfi áhugaleikfélaga eflist fólk í skilningi á samfélagi sínu. Samskiptahæfni skerpist, hæfileikinn til að setja sig í spor annarra þroskast. Í leikhúsi áhugamanna starfar fólk hlið við hlið að sameiginlegu marki, einstaklingar með ólíkan bakgrunn, í mismunandi aðstæðum og úr öllum starfsstéttum. Slík samvinna er óendanlega dýrmæt, ekki síst við aðstæður eins og ríkja núna á Íslandi.

 

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga, haldinn á Ísafirði 5-6. maí 2012 hvetur stjórnvöld til að standa vörð um listsköpun áhugamanna og áhugaleikhúsið sérstaklega. Skerðingar á fjárstuðningi undanfarin ár draga mátt úr hreyfingunni og rýra möguleika áhugaleikhússins til að eflast og þroskast. 

 

Fjárveitingar til starfseminnar vega ekki þungt fyrir ríkissjóð en skipta sköpum fyrir þetta mikilvæga grasrótarstarf sem hefur svo margt dýrmætt til málanna að leggja. 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?