Áramóta- og þrettándabrennum aflýst

Fulltrúar sveitarfélaganna á Suðurlandi funduðu í vikunni með lögreglustjóra og fulltrúa sýslumanns og varð niðurstaða þess fundar að ekki verði haldnar áramóta- eða þrettándabrennur.

Ákvörðunin er tekin með hliðsjón af þeim samkomutakmörkunum sem í gildi eru, en samkvæmt núgildandi reglum má ekki gefa út leyfi fyrir viðburðum sem standa eftir kl. 21 og almenna reglan um 10 manna samkomutakmarkanir gildir um viðburði af þessu tagi eins og aðra.

Við hvetjum íbúa til að fylgjast með flugeldasýningu Kiwanis á gamlársdag kl.17:00 en gæta um leið að fjarlægðarmörkum milli manna og forðast óæskilegar hópamyndanir.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?