Auglýsing um íbúakosningu í Sveitarfélaginu Ölfusi

Sveitarfélagið Ölfus boðar til íbúakosningar á grundvelli 107. gr. sveitarstjórnarlaga um aðal- og deiliskipulagstillögur vegna mölunarverksmiðju og hafnar í Keflavík við Þorlákshöfn. Skipulagstillögurnar eru aðgengilegar á vefsíðu sveitarfélagsins  Skipulag í kynningu sem og hér fyrir neðan og eru íbúar hvattir til að kynna sér þær vel.

Íbúum gefst kostur á að kjósa um tillögurnar og verða svarmöguleikar eftirfarandi:

  • Já (ég samþykki skipulagstillögurnar og þar með að fyrirtækið fái heimild til að reisa verksmiðjuna sem fjallað er um í áður auglýstum skipulagstillögum).

eða

  • Nei (ég hafna skipulagstillögunum og þar með að fyrirtækinu verði ekki heimilað að reisa verksmiðjuna sem fjallað er um í áður auglýstum skipulagstillögum).

 

Kosið er um eftirfarandi skipulagstillögur:

Aðalskipulagsbreyting

Lögð er fram tillaga að aðalskipulagsbreytingu fyrir iðnaðar og hafnarsvæði vestan byggðar í Þorlákshöfn. Hámark byggingarmagns á reit I3 er aukið úr 540.000 m2 í 1.040.000 m2. Þá er nýju hafnarsvæði bætt við sem nefnist H4.

ASK - Mölunarverksmiðja og hafnarsvæði við Keflavík

Deiliskipulag

Lögð er fram tillaga að deiliskipulagi fyrir mölunarverksmiðju og höfn á Laxabraut 43A og 43B. Mölunarverksmiðja samanstendur af fjölbreyttum byggingum með mismunandi hlutverk. Á hafnarsvæðinu er gert ráð fyrir hafnaraðstöðu með krana, mannvirkjum, athafnarsvæðum, færiböndum og öðrum innviðum fyrir rekstur og þjónustu hafnarinnar.

DSK uppdráttur - Mölunarverksmiðja og hafnarsvæði við Keflavík

DSK - Greinagerð, mölunarverksmiðja og hafnarsvæði við Keflavík

Umhverfismatsskýrsla - mölunarverksmiðja

Skipulögin verða til kynningar á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss fram til 1. júní 2024. Ábendingum, athugasemdum eða spurningum má beina á skipulag@olfus.is

 

Framkvæmd íbúakosningarinnar

Íbúakosningin skal standa yfir í tvær vikur og hefst þann 18. maí næstkomandi og lýkur á kjördegi forsetakosninga 1. júní næstkomandi.

Framkvæmd íbúakosningarinnar byggir á ákvæðum reglugerðar nr. 922/2023 um íbúakosningar sveitarfélaga. Reglurnar eru að mörgu leyti sambærilegar kosningalögum en helsti munur er að ekki er um einn eiginlegan kjördag að ræða heldur er tímabil kosningar frá 18. maí til 1. júní.

Íbúakosningin hefst 18. maí á skrifstofu sveitarfélagsins og verður opið milli kl. 10 og 13 þann dag.

Aðra daga er kjósendum boðið að kjósa á opnunartíma skrifstofu sveitarfélagsins.

Á kjördegi forsetakosninga þann 1. júní næstkomandi gefst kjósendum tækifæri til að greiða atkvæði á kjörstað og er opnunartími sá hinn sami og við forsetakosningar.

Kjósendur geta óskað eftir að greiða atkvæði í póstkosningu með því að senda póst á formann kjörstjórnar Sigurð Jónsson á netfangið sigginonna@gmail.com eða á Söndru Dís Hafþórsdóttur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs á netfangið sandradis@olfus.is

Atkvæðagreiðsla með pósti fer fram með þeim hætti að kjósandi óskar eftir því við kjörstjórn að fá kjörgögn send til sín á það heimilisfang eða það netfang sem hann gefur upp. Halda skal skrá utan um þá kjósendur sem fá kjörgögn send til sín. Óski kjósandi eftir að fá atkvæði sent á heimilisfang er atkvæðaseðill ásamt sendiumslagi, kjörseðilsumslagi og fylgibréfi sent til kjósanda á umbeðið heimilisfang. Kjósandi merkir við atkvæðið og leggur það í kjörseðilsumslagið í viðurvist tveggja lögráða votta eða lögbókanda. Kjósandi fyllir út fylgibréf og leggur það og atkvæðisumslag í sendiumslagið. Óski kjósandi eftir að fá kjörgögn send rafrænt eru þau send á umbeðið netfang. Atkvæðaseðill og fylgibréf eru prentuð út og kjósandi merkir við atkvæðið og leggur það í umslag sem kjósandi útvegar sjálfur. Umslagið og fylgibréf eru lögð í annað umslag sem kjósandi útvegar einnig sjálfur. Kjósandi annast sjálfur sendingu atkvæðis til kjörstjórnar og ber kostnað af sendingu bréfsins.

Rétt til þátttöku í íbúakosningu hafa þeir sem mega kjósa í sveitarstjórnarkosningum, þ.e.:

a)  Hver íslenskur, danskur, finnskur, sænskur eða norskur ríkisborgari sem náð hefur 18 ára aldri þegar kosning hefst og á      skráð lögheimili í því sveitarfélagi sem íbúakosning fer fram,

b) Erlendur ríkisborgari, annar en greinir í a-lið, ef hann hefur átt skráð lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir lokadag     atkvæðagreiðslu, enda fullnægi hann að öðru leyti skilyrðum a-liðar

Atkvæðagreiðslan er bindandi skv. 3. mgr. 107. gr. sveitarstjórnarlaga.

Yfirkjörstjórn sveitarfélagsins fer með hlutverk kjörstjórnar vegna íbúakosninga.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?