Auglýsing um skipulag

Bjarnastaðir
Bjarnastaðir

 

Bæjarstjórn samþykkti þann 23. febrúar, eftirtaldar skipulagstillögur í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar og 2. málsgrein 36. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

 

Tillaga að deiliskipulagi fyrir Krók - hótel

Skipulagstillagan heimilar að byggt verði við núverandi hótel svo hægt sé að fjölga herbergjum sem eru 21 í dag. Í aðalskipulagi þar sem fjallað er um lóðina segir um svæðið sem er auðkennt sem VÞ6: Fjöldi gesta 150. Á svæðinu er hótel og veitingarekstur. Á hótelinu er 21 herbergi og veitingasalur fyrir 100-150 gesti.

Krókur hótel - deiliskipulagstillaga

 

Breyting á deiliskipulagi Gljúfurárholt land 9

Breytingin er í samræmi við uppbyggingarheimildir á landbúnaðarlandi í nýju aðalskipulagi Ölfuss 2020-2036. Byggingarheimildir á lóðunum aukast og útlínur einnar lóðar er breytt lítillega og heimilt að gera íbúðarhús í stað frístundahúss á henni.

Gljúfurárholt land 9 - deiliskipulagsbreyting

 

Deiliskipulagstillaga fyrir Bjarnastaði í Ölfusi

Tillaga sem setur ramma um framtíðaruppbyggingu að Bjarnastöðum í Ölfusi. Gert er ráð fyrir nokkrum gestahúsum og uppbyggingu í samræmi við heimildir aðalskipulags á landbúnaðarsvæðum, en á staðnum er í dag er rekin gististarfsemi og hestatengd ferðaþjónustustarfsemi.

Bjarnarstaðir – deiliskipulagstillaga

 

Tillögurnar verða til sýnis á bæjarskrifstofu Ölfuss, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn dagana 1. mars til 13. apríl 2023. Hægt er að senda ábendingar eða athugasemdir á netfangið skipulag@olfus.is fyrir lok vinnudags þann 13. apríl  2023, eða með bréfpósti á skipulagsfulltrúa, bæjarskrifstofu Ölfuss, Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn.

 

Óveruleg breyting á aðalskipulagi Ölfuss 2020-2036 vegna Raufarhólshellis

Bæjarstjórn Ölfuss samþykkti þann 23. febrúar óverulega breytingu á aðalskipulagi Ölfuss 2020 - 2036 í samræmi við 2. málsgr. 36 greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Skilmálar úr eldra skipulagi fyrir Raufarhólshelli féllu út við heildarendurskoðun aðalskipulags. Þessir skilmálar voru skilyrði fyrir því að hægt væri að heimila uppbyggingu á svæðinu sem er innan grannsvæðis vatnsverndar. Þar sem uppi eru áform um áframhaldandi uppbyggingu á svæðinu er þetta nú lagfært.

Raufarhólshellir - tillaga að óverulegri breytingu á aðalskipulagi

 

Gunnlaugur Jónasson, skipulagsfulltrúi

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?