Auglýsing um skipulag

Eftirtaldar skipulagstillögur eru auglýstar skv. 31. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillögurnar eru til umsagnar í skipulagsgátt og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar þar.

Bolaölduvirkjun – Iðnaðarsvæði við Fjallið eina - Aðalskipulagsbreyting

Lögð er fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi Ölfuss. Breytingin felur í sér að útbúið verði nýtt iðnaðarsvæði I25 þar sem ráðgert er að setja upp jarðvarmavirkjun.

Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 27. nóvember 2025.

 

Hafnarsvæði H4 – Breyting á aðalskipulagi

Lagt er fram erindi vegna endurafgreiðslu aðalskipulagsbreytingar sem snýr að nýju hafnarsvæði H4 í hafnarstæðinu Keflavík, austan Þorlákshafnar. Breytingin var áður samþykkt til auglýsingar af hálfu skipulags- og umhverfisnefndar og bæjarstjórnar, í tengslum við fyrirhugaða mölunarverksmiðju Heidelberg Pozzolanic Materials. Þá var samþykkt bæjarstjórnar skilyrt við jákvæða niðurstöðu í íbúakosningu um þá starfsemi. Þar sem nú liggur fyrir að ekki verður af mölunarverksmiðjunni, og aðalskipulagsbreytingin snýr eingöngu að tilkomu nýs hafnarsvæðis, er málið lagt fram að nýju án tengingar við umrædda verksmiðju.

 

Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 28. ágúst 2025.

Grásteinn – Stækkun íbúðasvæðis – óveruleg breyting á Aðalskipulagi

Lögð er fram óveruleg breyting á aðalskipulagi Ölfuss er snýr að Grásteini. Í breytingunni felst stækkun landnotkunarreitsins ÍB20 um 8.514 m2. Þá er gerð uppfærsla á töflu 16 þar sem heildarfjöldi íbúða er tiltekinn 35 í stað 25.

 

Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 29. janúar 2026.

Grásteinn – Fjölgun íbúðalóða– breyting á deiliskipulagi

Lögð er fram deiliskipulagsbreyting á landi Grásteins. Í breytingunni felst að skipulagssvæðið er stækkað í átt að Varmá og 12 íbúðalóðum bætt við svæðið.

 

Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 29. janúar 2026.

Þorlákshafnarvegur – Nýtt deiliskipulag

Lagt er fram deiliskipulag fyrir Þorlákshafnarveg milli Hveragerðis og gatnamóta Þrengslavegs. Í skipulaginu felst að fækka þarf vegtengingum á veginum og leggja hliðarvegi þar sem það á við. Í skipulaginu er einnig gert ráð fyrir að lagður sé göngu/hjólastígur norðan megin við veginn.

 

Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 29. janúar 2026.

Kirkjuferja – fjórar nýjar íbúðalóðir – Nýtt deiliskipulag

Lagt er fram nýtt deiliskipulag fyrir Kirkjuferju. Skipulagið felur í sér að stofnaðar eru fjórar 1 ha. íbúðalóðir.

 

Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 11. desember 2025.

Hafnarsvæði H1 – Nýtt deiliskipulag

Lagt er fram nýtt deiliskipulag fyrir Hafnarsvæði H1. Í skipulaginu er gert ráð fyrir allt að 23 lóðum fyrir hafnsækna starfsemi.

 

Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 11. desember 2025

Gerðakot frístundahús – Nýtt deiliskipulag

Lögð er fram tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir lóðina Gerðakot (landnr. 173435). Tillagan tekur til einnar lóðar sem skráð er 5.050 m² að stærð, skv. HMS. Lóðin er ætluð fyrir frístundahús, gestahús og geymslu/gróðurhús.

 

Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 11. desember 2025

Kirkjuferjuhjáleiga – Tvær íbúðalóðir – Nýtt deiliskipulag

Lagt er fram deiliskipulag fyrir tvær lóðir í landi Kirkjuferjuhjáleigu. Deiliskipulagið tekur til fyrirhugaðar uppbyggingar á rúmlega 5,3 ha landspildu á jörðinni Kirkjuferjuhjáleigu (L171749) í sveitarfélaginu Ölfus. Stofnaðar eru tvær lóðir á landbúnaðarlandi þar sem heimilt er að byggja upp til fastrar búsetu.

 

Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 11. desember 2025

Framkvæmdaleyfi – Tvær rannsóknarborholur í Hverahlíð

Sótt er um framkvæmdaleyfi til borunar tveggja rannsóknarborhola í Hverahlíð og lagningu slóða að þeim.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Framkvæmdaleyfi veitt. Slóðar sem verða til við rannsóknar- eða vinnsluboranir skulu opnir almenningi að rannsóknarborun lokinni.

 

Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 11. desember 2025

_________________________________

 

 

Skipulagstillögurnar eru til umsagnar á Skipulagsgáttinni á www.skipulagsgatt.is til og með 16.3.2026. Til að finna ákveðið mál skal smella á „Leita að máli“ og slá inn nafn málsins í leitarreitinn.

Á Skipulagsgáttinni er hægt að:

  • Skoða allar upplýsingar og gögn sem tengjast málinu
  • Leggja fram athugasemdir
  • Lesa þær athugasemdir sem aðrir hafa sent inn

Ef hakað er við „Vakta mál“ á tilteknu máli, fær viðkomandi tilkynningu í tölvupósti í hvert skipti sem breyting verður á málinu.

 

Þá er einnig hægt að nálgast upplýsingar eða gögn á Bæjarskrifstofu Ölfus, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn, með því að senda fyrirspurn á skipulag@olfus.is eða hafa samband við bæjarskrifstofuna í síma 480 3800.

 

 

 

 

Sigurður Steinar Ásgeirsson

Sviðsstjóri
Skipulags- og lögfræðisvið

 

 

Vakin er athygli á að samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 73/2020 og 2. mgr. 6. gr. laga nr. 160/2010, má kæra ákvarðanir sveitarstjórnar um samþykkt aðalskipulagsbreytinga og deiliskipulagsáætlana til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Um kærufrest fer samkvæmt 3. mgr. 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem kveðið er á um fjögurra vikna kærufrest frá birtingu ákvörðunar í B-deild Stjórnartíðinda.

Ákvörðun sveitarstjórnar um útgáfu framkvæmdaleyfis samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 14. gr. sömu laga og 5. mgr. 13. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi, er sjálfstætt kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011. Kærufrestur vegna slíkrar ákvörðunar er einn mánuður, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011.

Um meðferð kærumála gilda ákvæði laga nr. 130/2011, reglugerðar nr. 1300/2011 um málsmeðferð fyrir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, auk ákvæða stjórnsýslulaga nr. 37/1993, einkum um kæruheimild, sbr. 26. gr., andmælarétt, sbr. 13. gr., og rannsóknarreglu, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga.

Kæru skal beint til úrskurðarnefndarinnar að Borgartúni 21, 105 Reykjavík, eða með rafrænum hætti í gegnum kærugátt Stjórnarráðs Íslands á www.stjornarradid.is

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?