Eftirtaldar skipulagstillögur eru auglýstar skv. 31. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillögurnar eru til umsagnar í skipulagsgátt og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar þar.
Árbær 4 – Dýraspítali og verslunarlóðir – Nýtt deiliskipulag
Lagt er fram nýtt deiliskipulag fyrir dýraspítala og aðra verslunar- og þjónustustarfsemi á Árbæjarsvæðinu við Selfoss. Helstu markmið deiliskipulags er að skapa bætta þjónustu í kringum nýjan dýraspítala og eins að koma til móts við þarfir atvinnulífs með uppbyggingu atvinnusvæða í nálægð við dreifbýlið í kringum Selfoss. Um er að ræða 10 lóðir sem eru hver um 0,5 ha. að stærð en lóð dýraspítalans verður 3 ha.
Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 26. febrúar 2026.
Mýrarsel 9 – Nýtt deiliskipulag
Lagt er fram deiliskipulag fyrir 5 íbúðalóðir á Mýrarseli 9. Hver lóð yrði um 0,53 ha að stærð. Á hverri lóð yrði heimilt að reisa einbýlishús ásamt stakstæðum eða sambyggðum bílskúr og 80 m2 vinnustofu/gróðurhús.
Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 26. febrúar 2026.
Tvær námur í Lambafelli E2 og E3 - Deiliskipulagslýsing
Lögð er fram skipulagslýsing vegna efnisnáma E2 og E3 í Lambafelli.
Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 26. febrúar 2026.
Framkvæmdaleyfi – Breikkanir vegamóta vegna vindmylluflutninga
Vegagerðin sækir um framkvæmdaleyfi til breikkunar tiltekinna vegamóta á þjóðvegum. Breikkanirnar eru gerðar til að mæta væntalegum vindmylluflutningum í gegnum Sveitarfélagið Ölfus á vor og sumarmánuðum 2026.
Framkvæmdaleyfið var samþykkt á fundi bæjarstjórnar þann 26. febrúar 2026.
Framkvæmdaleyfi – Lághitaborhola í landi Bakka
Veitur leggja fram umsókn um framkvæmdaleyfi vegna borunar lághitaborholu í landi Bakka. Borholunni er ætlað að mæta aukinni eftirspurn eftir heitu vatni til Þorlákshafnar. Matsskyldufyrirspurn er í umsagnarferli hjá Skipulagsstofnun en umsagnarfrestur er til 23. febrúar 2026.
Framkvæmdaleyfið var samþykkt á fundi bæjarstjórnar þann 26. febrúar 2026 með fyrirvara um að framkvæmdin væri ekki metin umhverfismatsskyld eða matsskyldufyrirspurn leiði annað í ljós sem mæli sérstaklega gegn framkvæmdinni. Framkvæmdaraðili skal ráðfæra sig við skipulagsfulltrúa sveitarfélagsins áður en framkvæmd hefst.
_________________________________
Skipulagstillögurnar eru til umsagnar á Skipulagsgáttinni á www.skipulagsgatt.is til og með 23.04.2026. Til að finna ákveðið mál skal smella á „Leita að máli“ og slá inn nafn málsins í leitarreitinn.
Á Skipulagsgáttinni er hægt að:
· Skoða allar upplýsingar og gögn sem tengjast málinu
· Leggja fram athugasemdir
· Lesa þær athugasemdir sem aðrir hafa sent inn
Ef hakað er við „Vakta mál“ á tilteknu máli, fær viðkomandi tilkynningu í tölvupósti í hvert skipti sem breyting verður á málinu.
Gögn vegna framkvæmdaleyfa eru jafnframt aðgengileg í skipulagsgátt og má finna leiðbeiningar um kærur hér að neðan.
Þá er einnig hægt að nálgast upplýsingar eða gögn á Bæjarskrifstofu Ölfus, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn, með því að senda fyrirspurn á skipulag@olfus.is eða hafa samband við bæjarskrifstofuna í síma 480 3800.
Sigurður Steinar Ásgeirsson
Sviðsstjóri Skipulags- og lögfræðisvið
Vakin er athygli á að samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 73/2020 og 2. mgr. 6. gr. laga nr. 160/2010, má kæra ákvarðanir sveitarstjórnar um samþykkt aðalskipulagsbreytinga og deiliskipulagsáætlana til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Um kærufrest fer samkvæmt 3. mgr. 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem kveðið er á um fjögurra vikna kærufrest frá birtingu ákvörðunar í B-deild Stjórnartíðinda.
Ákvörðun sveitarstjórnar um útgáfu framkvæmdaleyfis samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 14. gr. sömu laga og 5. mgr. 13. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi, er sjálfstætt kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011. Kærufrestur vegna slíkrar ákvörðunar er einn mánuður, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011.
Um meðferð kærumála gilda ákvæði laga nr. 130/2011, reglugerðar nr. 1300/2011 um málsmeðferð fyrir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, auk ákvæða stjórnsýslulaga nr. 37/1993, einkum um kæruheimild, sbr. 26. gr., andmælarétt, sbr. 13. gr., og rannsóknarreglu, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga.
Kæru skal beint til úrskurðarnefndarinnar að Borgartúni 21, 105 Reykjavík, eða með rafrænum hætti í gegnum kærugátt Stjórnarráðs Íslands á www.stjornarradid.is