Auglýsing um skipulag

Eftirtaldar skipulagstillögur eru auglýstar skv. 31. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillögurnar eru til umsagnar í skipulagsgátt og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar þar..

Hjarðarból - Fjölgun íbúðalóða – óveruleg aðalskipulagsbreyting

Lögð er fram óveruleg breyting á aðalskipulagi vegna Hjarðarbóls (ÍB27). Breytingin felst í uppfærslu á töflu þar sem fram kemur fjöldi lóða og er fjölda breytt úr 25 í 31.

 

Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 30. apríl 2026.

Deiliskipulag efnistökunáma E10, E11 og E12

Lagt er fram deiliskipulag fyrir efnisnámur í landi Hrauns. Efnisnámurnar eru númer E10, E11 og E12 í aðalskipulagi.

 

Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 30. apríl 2026.

Framkvæmdaleyfi – Vinnsluborhola í Lakakróki

Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi vegna vinnsluborholu í Lakakróki. Framkvæmdin er innan skilgreinds iðnaðarsvæðis og í samræmi við umhverfismatsskýrslu frá 2025 ,,Vinnslu- og rannsóknarholur í Hverahlíð II og Meitlum, Sveitarfélaginu Ölfusi

 

Framkvæmdaleyfið var samþykkt á fundi bæjarstjórnar þann 30. apríl 2026.

Framkvæmdaleyfi – Ýmsar framkvæmdir við tengivirki á Völlum

Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi vegna ýmissa framkvæmda í kringum tengivirki Landsnets á Völlum við Hveragerði. Framkvæmdirnar tengjast stækkun tengivirkisins sem fyrirhuguð er síðar í sumar en eru þó ekki hluti byggingarleyfisins.

 

Framkvæmdaleyfið var samþykkt á fundi bæjarstjórnar þann 30. apríl 2026.

Framkvæmdaleyfi – Þorlákshafnarlína 2

Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi vegna lagningar Þorlákshafnarlínu 2. Umsóknin snýr aðeins að þeim kafla sem fyrirhugað er að leggja á árinu 2026.

 

Framkvæmdaleyfið var samþykkt á fundi bæjarstjórnar þann 30. apríl 2026.

_________________________________

 

 

Skipulagstillögurnar eru til umsagnar á Skipulagsgáttinni á www.skipulagsgatt.is til og með 2.7.2026. Til að finna ákveðið mál skal smella á „Leita að máli“ og slá inn nafn málsins í leitarreitinn.

Á Skipulagsgáttinni er hægt að:

  • Skoða allar upplýsingar og gögn sem tengjast málinu
  • Leggja fram athugasemdir
  • Lesa þær athugasemdir sem aðrir hafa sent inn

Ef hakað er við „Vakta mál“ á tilteknu máli, fær viðkomandi tilkynningu í tölvupósti í hvert skipti sem breyting verður á málinu.

 

Gögn vegna framkvæmdaleyfa eru jafnframt aðgengileg í skipulagsgátt og má finna leiðbeiningar um kærur og upplýsingar um kærufresti hér að neðan.

 

Þá er einnig hægt að nálgast upplýsingar eða gögn á Bæjarskrifstofu Ölfus, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn, með því að senda fyrirspurn á skipulag@olfus.is eða hafa samband við bæjarskrifstofuna í síma 480 3800.

 

 

 

 

Sigurður Steinar Ásgeirsson

Sviðsstjóri
Skipulags- og lögfræðisvið

 

 

Vakin er athygli á að samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 73/2020 og 2. mgr. 6. gr. laga nr. 160/2010, má kæra ákvarðanir sveitarstjórnar um samþykkt aðalskipulagsbreytinga og deiliskipulagsáætlana til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Um kærufrest fer samkvæmt 3. mgr. 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem kveðið er á um fjögurra vikna kærufrest frá birtingu ákvörðunar í B-deild Stjórnartíðinda.

Ákvörðun sveitarstjórnar um útgáfu framkvæmdaleyfis samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 14. gr. sömu laga og 5. mgr. 13. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi, er sjálfstætt kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011. Kærufrestur vegna slíkrar ákvörðunar er einn mánuður, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011.

Um meðferð kærumála gilda ákvæði laga nr. 130/2011, reglugerðar nr. 1300/2011 um málsmeðferð fyrir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, auk ákvæða stjórnsýslulaga nr. 37/1993, einkum um kæruheimild, sbr. 26. gr., andmælarétt, sbr. 13. gr., og rannsóknarreglu, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga.

Kæru skal beint til úrskurðarnefndarinnar að Borgartúni 21, 105 Reykjavík, eða með rafrænum hætti í gegnum kærugátt Stjórnarráðs Íslands á www.stjornarradid.is

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?