Eftirtaldar skipulagstillögur eru auglýstar skv. 31. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillögurnar eru til umsagnar í skipulagsgátt og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar þar.
Hafnar- og athafnasvæði við Suðurvararbryggju nýtt deiliskipulag
Lagt er fram deiliskipulag fyrir hafnarsvæðið umhverfis Suðurvararbryggju. Á hafnarsvæðinu er gert ráð fyrir athafnasvæðinu AT8 og hafnarsvæði H3. Þar er einnig gert ráð fyrir að útsýnispallur við Suðurvör verði færður sunnar, nær Þorlákshafnarvita og að útbúið verði bílastæði og upphækkaður útsýnispallur þar.
Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 28. maí 2026.
Hjarðarból – deiliskipulagsbreyting – stækkun skipulagssvæðis
Lögð er fram breyting á deiliskipulagi Hjarðarbóls lóðir 1 og 2. Skipulagsbreytingin felur í sér stækkun skipulagssvæðisins til vesturs og afmörkun 6 nýrra íbúðalóða.
Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 28. maí 2026.
Lindarbær – nýtt deiliskipulag
Lagt er fram deiliskipulag fyrir spilduna Lindarbær í Árbæjarhverfi. Spildan er 7.409 m2 og er ráðgert að reisa íbúðarhús, bílskúr og gróðurhús.
Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 28. maí 2026.
Hraunkvíar á Grímslækjarheiði – Nýtt deiliskipulag
Deiliskipulag Hraunkvía á Grímslækjarheiði er endurauglýst þar sem meira en 12 mánuðir eru liðnir frá lokum auglýsingarfrests og skipulagið ekki verið birt í B-deild. Skipulagssvæðið ser samtals um 9,2 ha. að stærð og felur í sér afmörkun 14 íbúðalóða á reit ÍB17 skv. aðalskipulagi Ölfus.
Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 28. maí 2026.
Framkvæmdaleyfi – Efnistaka í Núpanámu
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku í Núpanámu í landi vatna. Framkvæmdaleyfið tekur til efnistöku sem nemur 12.000 m3 á næstu 2-3 árum. Efnið verður nýtt sem leiðnissandur vegna lagningar Þorlákshafnarlínu 2 sem fyrirhugað er að hefja í sumar. Núpanáma er á efnistökusvæði E10 í aðalskipulagi og er náman deiliskipulögð.
Framkvæmdaleyfið var samþykkt á fundi bæjarstjórnar þann 28. maí 2026.
Framkvæmdaleyfi – Gatnagerð Hraunkvíar
Landeigandi Hraunkvía sækir um framkvæmdaleyfi til að ráðast í gatnagerð á landinu. Deiliskipulag fyrir hverfið var langt komið í skipulagsferlinu en það þurfti að endurauglýsa það þar sem það rann út á tíma. Landeigandi hefur hug á að nýta sumarið 2026 í gatnagerð. Gatnagerð verður gerð í samræmi við tæknilýsingu sveitarfélagsins fyrir íbúabyggð í dreifbýli.
Framkvæmdaleyfið var samþykkt á fundi bæjarstjórnar þann 28. maí 2026.
Framkvæmdaleyfi – Vinnsluborhola við Skarðsmýrarfjall
ON sækir um framkvæmdaleyfi til borunar vinnsluborholu við Skarðsmýrarfjall, inni á skilgreindu iðnaðarsvæði í aðalskipulagi.
Framkvæmdaleyfið var samþykkt á fundi bæjarstjórnar þann 28. maí 2026.
_________________________________
Skipulagstillögurnar eru til umsagnar á Skipulagsgáttinni á www.skipulagsgatt.is til og með 6.8.2026. Til að finna ákveðið mál skal smella á „Leita að máli“ og slá inn nafn málsins í leitarreitinn.
Á Skipulagsgáttinni er hægt að:
- Skoða allar upplýsingar og gögn sem tengjast málinu
- Leggja fram athugasemdir
- Lesa þær athugasemdir sem aðrir hafa sent inn
Ef hakað er við „Vakta mál“ á tilteknu máli, fær viðkomandi tilkynningu í tölvupósti í hvert skipti sem breyting verður á málinu.
Gögn vegna framkvæmdaleyfa eru jafnframt aðgengileg í skipulagsgátt og má finna leiðbeiningar um kærur og upplýsingar um kærufresti hér að neðan.
Þá er einnig hægt að nálgast upplýsingar eða gögn á Bæjarskrifstofu Ölfus, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn, með því að senda fyrirspurn á skipulag@olfus.is eða hafa samband við bæjarskrifstofuna í síma 480 3800.
Sigurður Steinar Ásgeirsson
Sviðsstjóri
Skipulags- og lögfræðisvið
Vakin er athygli á að samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 73/2020 og 2. mgr. 6. gr. laga nr. 160/2010, má kæra ákvarðanir sveitarstjórnar um samþykkt aðalskipulagsbreytinga og deiliskipulagsáætlana til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Um kærufrest fer samkvæmt 3. mgr. 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem kveðið er á um fjögurra vikna kærufrest frá birtingu ákvörðunar í B-deild Stjórnartíðinda.
Ákvörðun sveitarstjórnar um útgáfu framkvæmdaleyfis samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 14. gr. sömu laga og 5. mgr. 13. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi, er sjálfstætt kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011. Kærufrestur vegna slíkrar ákvörðunar er einn mánuður, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011.
Um meðferð kærumála gilda ákvæði laga nr. 130/2011, reglugerðar nr. 1300/2011 um málsmeðferð fyrir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, auk ákvæða stjórnsýslulaga nr. 37/1993, einkum um kæruheimild, sbr. 26. gr., andmælarétt, sbr. 13. gr., og rannsóknarreglu, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga.
Kæru skal beint til úrskurðarnefndarinnar að Borgartúni 21, 105 Reykjavík, eða með rafrænum hætti í gegnum kærugátt Stjórnarráðs Íslands á www.stjornarradid.is