Eftirtaldar skipulagstillögur eru auglýstar skv. 30. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillögurnar eru til umsagnar í skipulagsgátt og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar þar.
Árbæjarhverfi – breyting landnotkunar úr samfélagsþjónustu í íbúðasvæði – breyting á aðalskipulagi
Lögð er fram breyting á aðalskipulagi fyrir Árbæjarhverfið. Skipulagsbreytingin felur í sér að landnotkun verði breytt úr samfélagsþjónustu í íbúðasvæði.
Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 02. júlí 2026.
Iðnaðarsvæði sunnan Bolaöldu – nýtt deiliskipulag
Lagt er fram nýtt deiliskipulag fyrir iðnaðarsvæði norðvestur af Geitafelli. Deiliskipulagið felur í sér staðsetningu tveggja borplana fyrir rannsóknarborholur. Gert er ráð fyrir framlengingu vegslóða sem liggur frá Litla Sandfelli norður fyrir Geitafell.
Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 26. febrúar 2026
Litla kaffistofan – Ferðaþjónusta –nýtt deiliskipulag
Lagt er fram nýtt deiliskipulag fyrir lóð litlu Kaffistofunnar. Þar sem til stendur að reka ferðaþjónustu tengda fjórhjólum- og norðurljósaferðum.
Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 02. júlí 2026.
Framkvæmdaleyfi – Óseyrarbraut - prufuholur
Hafnarnes fasteignir ehf sækir um framkvæmdaleyfi til jarðvegsrannsókna við Óseyrarbraut. Tilgangur rannsóknarinnar er að rannsaka jarðvegsaðstæður, meta burðarhæfni og afla upplýsinga sem nýtast við hönnun og undirbúning fyrirhugaðar uppbyggingar. Grafnar verða þrjár prufuholur á hverjum af þremur reitum við Óseyrarbrautina sem verða afgirtar meðan á rannsókn stendur.
Framkvæmdaleyfið var samþykkt á fundi bæjarstjórnar þann 02. júlí 2026.
Framkvæmdaleyfi – Tengivirki á Völlum – nýr slóði
Landsnet hf. sækir um framkvæmdaleyfi til að leggja nýjan aðkomuveg að tengivirki Landsnet á Völlum við Hveragerði. Í stað þess að styrkja og breyta núverandi aðkomuveg þannig að hægt sé að flytja hann þungaflutninga hefur verið komist að samkomulagi við Eldhesta að gera nýjan aðkomuveg. Samfylgjandi framkvæmdum við nýjan aðkomuveg verður gerður nýr reiðstígur sunnan við núverandi tengivirki og reiðstígur samhliða Varmá sveigður örlítið frá fyrirhuguðu loftlínumastri til að tengja Lækjartúnslínu 1 inn í nýjan 220 kV rofareit.
Framkvæmdaleyfið var samþykkt á fundi bæjarstjórnar þann 02. júlí 2026.
_________________________________
Skipulagstillögurnar eru til umsagnar á Skipulagsgáttinni á www.skipulagsgatt.is til og með 20.8.2026. Til að finna ákveðið mál skal smella á „Leita að máli“ og slá inn nafn málsins í leitarreitinn.
Á Skipulagsgáttinni er hægt að:
- Skoða allar upplýsingar og gögn sem tengjast málinu
- Leggja fram athugasemdir
- Lesa þær athugasemdir sem aðrir hafa sent inn
Ef hakað er við „Vakta mál“ á tilteknu máli, fær viðkomandi tilkynningu í tölvupósti í hvert skipti sem breyting verður á málinu.
Gögn vegna framkvæmdaleyfa eru jafnframt aðgengileg í skipulagsgátt og má finna leiðbeiningar um kærur og upplýsingar um kærufresti hér að neðan.
Þá er einnig hægt að nálgast upplýsingar eða gögn á Bæjarskrifstofu Ölfus, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn, með því að senda fyrirspurn á skipulag@olfus.is eða hafa samband við bæjarskrifstofuna í síma 480 3800.
Sigurður Steinar Ásgeirsson
Sviðsstjóri
Skipulags- og lögfræðisvið
Vakin er athygli á að samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 73/2020 og 2. mgr. 6. gr. laga nr. 160/2010, má kæra ákvarðanir sveitarstjórnar um samþykkt aðalskipulagsbreytinga og deiliskipulagsáætlana til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Um kærufrest fer samkvæmt 3. mgr. 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem kveðið er á um fjögurra vikna kærufrest frá birtingu ákvörðunar í B-deild Stjórnartíðinda.
Ákvörðun sveitarstjórnar um útgáfu framkvæmdaleyfis samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 14. gr. sömu laga og 5. mgr. 13. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi, er sjálfstætt kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011. Kærufrestur vegna slíkrar ákvörðunar er einn mánuður, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011.
Um meðferð kærumála gilda ákvæði laga nr. 130/2011, reglugerðar nr. 1300/2011 um málsmeðferð fyrir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, auk ákvæða stjórnsýslulaga nr. 37/1993, einkum um kæruheimild, sbr. 26. gr., andmælarétt, sbr. 13. gr., og rannsóknarreglu, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga.
Kæru skal beint til úrskurðarnefndarinnar að Borgartúni 21, 105 Reykjavík, eða með rafrænum hætti í gegnum kærugátt Stjórnarráðs Íslands á www.stjornarradid.is