Auglýsing um skipulag

Eftirtaldar skipulagstillögur eru auglýstar skv. 30. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillögurnar eru til umsagnar í skipulagsgátt og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar þar.

Eima í Selvogi – landbúnaðarlóðir – breyting á deiliskipulagi

Lögð er fram breyting á deiliskipulagi fyrir Eimu í Selvogi. Breytingin felur í sér útvíkkun deiliskipulagsins og að bætt verði við fimm lóðum norðan Suðurstrandarvegar. Tillagan verður jafnframt grenndarkynnt fyrir íbúum á svæðinu samhliða auglýsingu.

 

Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 24. september 2026.

Kinn (L212149) – nýtingarhlutfall – breyting á deiliskipulagi

Lögð er fram breyting á deiliskipulagi fyrir Kinn í Ölfusi. Með breytingunni er nýtingarhlutfall lóðarinnar fært til samræmis við breytingu á aðalskipulagi, dags. 26.01.2023, fyrir landbúnaðarsvæði L1 á lóðum yfir 3 ha, þar sem nýtingarhlutfall má vera allt að 0,15. Á byggingarreit 1 verður heimilt að byggja allt að 230 m² íbúðarhús á einni hæð ásamt allt að 70 m² bílskúr. Á byggingarreit 2 verður heimilt að byggja gróðurhús og tilheyrandi geymslu- og aðstöðuhús, allt að 5.600 m², og á byggingarreit 3 gróðurhús úr stálgrind með plastdúk og tilheyrandi aðstöðu, allt að 700 m². Heildarbyggingarmagn verður mest 6.600 m².

 

Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 24. september 2026.

Árbæjarhverfi – S16 í ÍB13 – breyting á aðalskipulagi

Lögð er fram breyting á Aðalskipulagi Ölfuss 2020–2036 sem snýr að Árbæjarhverfi. Í breytingunni felst að samfélagsþjónustusvæði S16 víkur fyrir stækkun íbúðarsvæðisins ÍB13.

 

Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 24. september 2026.

Þorkelsgerði 2C – nýtt deiliskipulag

Lagt er fram nýtt deiliskipulag fyrir spilduna Þorkelsgerði 2C. Í skipulaginu felst að landinu er skipt upp í fjórar lóðir, eina íbúðarhúsalóð og þrjár frístundahúsalóðir.
Deiliskipulagið er endurauglýst þar sem meira en 12 mánuðir eru liðnir frá lokum auglýsingafrests og skipulagið ekki verið birt í B-deild.

 

Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 24. september 2026.

Vesturgljúfur 2–8 – AT í VÞ26 – óveruleg breyting á aðalskipulagi

Lögð er fram óveruleg breyting á aðalskipulagi fyrir lóðirnar Vesturgljúfur 2–8. Breytingin felur í sér að landnotkun lóðanna er breytt úr athafnasvæði í verslunar- og þjónustusvæðið VÞ26. Tillagan verður jafnframt grenndarkynnt fyrir nærliggjandi lóðarhöfum.

 

Tillagan var samþykkt á fundi bæjarstjórnar þann 24. september 2026.

Riftún – sumarhúsalóð – nýtt deiliskipulag

Lagt er fram nýtt deiliskipulag fyrir sumarhúsalóðina Riftún. Á lóðinni verður heimilt að byggja sumarhús ásamt gestahúsi í samræmi við ákvæði Aðalskipulags Ölfuss.

 

Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 24. september 2026.

Niðurrennslislögn á Hellisheiði – framkvæmdaleyfi

Orka náttúrunnar hyggst stækka niðurrennslissvæði Hellisheiðarvirkjunar og hefja niðurrennsli í tvær holur nærri Gígahnúk og tvær holur nærri Lakahnúkum. Framkvæmdin felst í því að lögð verður ný neðanjarðarlögn að holunum, að undanskildum stuttum kafla undir Hringveg þar sem núverandi lögn verður nýtt áfram. Bráðabirgðalögn sem nú liggur ofanjarðar að holum við Lakahnúka verður tekin niður.

 

Framkvæmdaleyfið var samþykkt á fundi bæjarstjórnar þann 24. september 2026.

Endurheimt votlendis að Sogni – framkvæmdaleyfi

Lögð var fram umsókn um framkvæmdaleyfi vegna endurheimtar votlendis á um 25 ha svæði á jörðinni Sogni (L171801). Fyrirhugað er að fylla upp í eða stífla 4.264 m af skurðum.

 

Framkvæmdaleyfið var samþykkt á fundi bæjarstjórnar þann 24. september 2026.

 

_________________________________

 

 

Skipulagstillögurnar eru til umsagnar á Skipulagsgáttinni á www.skipulagsgatt.is til og með 26.11.2026. Til að finna ákveðið mál skal smella á „Leita að máli“ og slá inn nafn málsins í leitarreitinn.

Á Skipulagsgáttinni er hægt að:

  • Skoða allar upplýsingar og gögn sem tengjast málinu
  • Leggja fram athugasemdir
  • Lesa þær athugasemdir sem aðrir hafa sent inn

Ef hakað er við „Vakta mál“ á tilteknu máli, fær viðkomandi tilkynningu í tölvupósti í hvert skipti sem breyting verður á málinu.

 

Gögn vegna framkvæmdaleyfa eru jafnframt aðgengileg í skipulagsgátt og má finna leiðbeiningar um kærur og upplýsingar um kærufresti hér að neðan.

 

Þá er einnig hægt að nálgast upplýsingar eða gögn á Bæjarskrifstofu Ölfus, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn, með því að senda fyrirspurn á skipulag@olfus.is eða hafa samband við bæjarskrifstofuna í síma 480 3800.

 

 

 

 

Sigurður Steinar Ásgeirsson

Sviðsstjóri
Skipulags- og lögfræðisvið

 

 

Vakin er athygli á að samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 73/2020 og 2. mgr. 6. gr. laga nr. 160/2010, má kæra ákvarðanir sveitarstjórnar um samþykkt aðalskipulagsbreytinga og deiliskipulagsáætlana til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Um kærufrest fer samkvæmt 3. mgr. 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem kveðið er á um fjögurra vikna kærufrest frá birtingu ákvörðunar í B-deild Stjórnartíðinda.

Ákvörðun sveitarstjórnar um útgáfu framkvæmdaleyfis samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 14. gr. sömu laga og 5. mgr. 13. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi, er sjálfstætt kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011. Kærufrestur vegna slíkrar ákvörðunar er einn mánuður, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011.

Um meðferð kærumála gilda ákvæði laga nr. 130/2011, reglugerðar nr. 1300/2011 um málsmeðferð fyrir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, auk ákvæða stjórnsýslulaga nr. 37/1993, einkum um kæruheimild, sbr. 26. gr., andmælarétt, sbr. 13. gr., og rannsóknarreglu, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga.

Kæru skal beint til úrskurðarnefndarinnar að Borgartúni 21, 105 Reykjavík, eða með rafrænum hætti í gegnum kærugátt Stjórnarráðs Íslands á www.stjornarradid.is

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?