Auglýsing um styrki til landbótaverkefna

Reykjadalur
Reykjadalur
Uppgræðslusjóður
Uppgræðslusjóður Ölfuss auglýsir eftir umsóknum  um styrki til uppgræðsluverkefna 2014.



Uppgræðslusjóður Ölfuss auglýsir eftir umsóknum  um styrki til uppgræðsluverkefna 2014.
Heimilt er að veita landeigendum, Sveitarfélaginu Ölfusi, félagasamtökum og öðrum umráðahöfum lands styrki til landbótaverkefna.
Með styrkveitingum úr sjóðnum er ætlunin að efla landgræðslu og gróðurvernd í Sveitarfélaginu Ölfusi.

Styrkhæf verkefni:

Við ákvörðun um styrkveitingar er einkum lögð áhersla á verkefni sem falla að framkvæmdaáætlun sjóðsins en hún beinist að eftirfarandi verkefnum:

 a.     Stöðvun sandfoks, eflingu gróðurs og jarðvegsverndarskógrækt í nágrenni Þorlákshafnar.

b.      Stöðvun jarðvegsrofs og endurheimt gróðurs á 700 ha landsvæði milli Hengils og Lyklafells.

Nánari upplýsingar gefur formaður stjórnar Sveinn Steinarsson í síma 892-1661.
Einnig má finna frekari upplýsingar og umsóknareyðublöð á heimasíðu sveitarfélagsins á slóðinni 
www.olfus.is

Skila þarf inn umsóknum fyrir 28. mars. n.k. á bæjarskrifstofur Ölfuss Hafnarbergi 1 Þorlákshöfn.

 

 

 

 

                                                                                     Stjórn Uppgræðslusjóðs Ölfuss.

 

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?