Auglýsing um styrki til landbótaverkefna 2015

Merki Ölfuss
Merki Ölfuss
Uppgræðslusjóður Ölfuss auglýsir eftir umsóknum  um styrki til uppgræðsluverkefna 2015.

Uppgræðslusjóður Ölfuss auglýsir eftir umsóknum  um styrki til uppgræðsluverkefna 2015.

Heimilt er að veita landeigendum, Sveitarfélaginu Ölfusi, félagasamtökum og öðrum umráðahöfum lands styrki til landbótaverkefna.
Með styrkveitingum úr sjóðnum er ætlunin að efla landgræðslu og gróðurvernd í Sveitarfélaginu Ölfusi.

Styrkhæf verkefni:

Við ákvörðun um styrkveitingar er einkum lögð áhersla á verkefni sem falla að framkvæmdaáætlun sjóðsins en hún beinist að eftirfarandi verkefnum:

 a.     Stöðvun sandfoks, eflingu gróðurs og jarðvegsverndarskógrækt í nágrenni Þorlákshafnar.

b.      Stöðvun jarðvegsrofs og endurheimt gróðurs á 700 ha landsvæði milli Hengils og Lyklafells.

Nánari upplýsingar veitir Anna Björg Níelsdóttir formaður skipulags- bygginga- og umhverfisnefndar  annabjorg@olfus.is

Einnig má finna frekari upplýsingar og umsóknareyðublöð á heimasíðu sveitarfélagsins á slóðinni www.olfus.is

Skila þarf inn umsóknum fyrir 15. mars. n.k. á bæjarskrifstofur Ölfuss Hafnarbergi 1 Þorlákshöfn.

 

 

 

                                                                                     Uppgræðslusjóður Ölfuss.

 

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?