Auglýsing um vinnslutillögur

Eftirtaldar skipulagstillögur eru auglýstar skv. 2. Mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillögurnar eru til umsagnar í skipulagsgátt og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar þar.

 

Bolaölduvirkjun ASKbr

Lögð er fram vinnslutillaga vegna fyrirhugaðrar aðalskipulagsbreytingar fyrir Bolaölduvirkjun. Breytingin felur í sér að útbúið verði nýtt iðnaðarsvæði I25 þar sem ráðgert er að setja upp jarðvarmavirkjun.

 

Hafnarsvæði H3 og samfélagsþjónustusvæði S4 ASKbr

Lögð er fram vinnslutillaga vegna aðalskipulagsbreytingar er snertir H3 og S4 auk svæðanna OP1 og OP3. Til stendur að útvíkka H3 til að efla hafnarsvæðið umhverfis Suðurvararbryggju. Þá stendur einnig til að stækka reit S4 til að hægt sé að koma fyrir hjúkrunarheimili í grennd við Níuna, eins og fyrirhugað hefur verið.

 

_________________________________

 

 

 

Skipulagstillögurnar eru til umsagnar á Skipulagsgáttinni á www.skipulagsgatt.is til og með 27.11.2025. Til að finna ákveðið mál skal smella á „Leita að máli“ og slá inn nafn málsins í leitarreitinn.

Á Skipulagsgáttinni er hægt að:

  • Skoða allar upplýsingar og gögn sem tengjast málinu
  • Leggja fram athugasemdir
  • Lesa þær athugasemdir sem aðrir hafa sent inn

Ef hakað er við „Vakta mál“ á tilteknu máli, fær viðkomandi tilkynningu í tölvupósti í hvert skipti sem breyting verður á málinu.

 

Þá er einnig hægt að nálgast upplýsingar eða gögn á Bæjarskrifstofu Ölfus, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn, með því að senda fyrirspurn á skipulag@olfus.is eða hafa samband við bæjarskrifstofuna í síma 480 3800.

 

Sigurður Steinar Ásgeirsson

Sviðsstjóri
Skipulags- og lögfræðisvið

 

 

Vakin er athygli á að samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 73/2020 og 2. mgr. 6. gr. laga nr. 160/2010, má kæra ákvarðanir sveitarstjórnar um samþykkt aðalskipulagsbreytinga og deiliskipulagsáætlana til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Um kærufrest fer samkvæmt 3. mgr. 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem kveðið er á um fjögurra vikna kærufrest frá birtingu ákvörðunar í B-deild Stjórnartíðinda.

Ákvörðun sveitarstjórnar um útgáfu framkvæmdaleyfis samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 14. gr. sömu laga og 5. mgr. 13. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi, er sjálfstætt kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011. Kærufrestur vegna slíkrar ákvörðunar er einn mánuður, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011.

Um meðferð kærumála gilda ákvæði laga nr. 130/2011, reglugerðar nr. 1300/2011 um málsmeðferð fyrir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, auk ákvæða stjórnsýslulaga nr. 37/1993, einkum um kæruheimild, sbr. 26. gr., andmælarétt, sbr. 13. gr., og rannsóknarreglu, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga.

Kæru skal beint til úrskurðarnefndarinnar að Borgartúni 21, 105 Reykjavík, eða með rafrænum hætti í gegnum kærugátt Stjórnarráðs Íslands á www.stjornarradid.is

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?