Fjölbreytt og skapandi dagskrá fyrir alla fjölskylduna
Barnamenningardagar á Suðurlandi verða haldnir með glæsilegri dagskrá í Ölfusi dagana 20.–23. apríl, en hátíðin er samstarfsverkefni Sambands sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og sveitarfélaga á svæðinu.
Markmið hátíðarinnar er að efla þátttöku barna og fjölskyldna í menningu og listum með fjölbreyttum viðburðum.
Börn og ungmenni fá tækifæri til að skapa, njóta og taka þátt í menningu á sínum eigin forsendum. Börnin sjálf verða hugmyndasmiðir, listamenn og virkir þátttakendur í viðburðum hátíðarinnar.
Dagskráin í Ölfusi býður upp á fjölbreytta viðburði:
