Barnaþing Ölfuss 2026

Mynd úr skólastarfi Grunnskólans í Þorlákshöfn
Mynd úr skólastarfi Grunnskólans í Þorlákshöfn

Barna- og unglingaþing Ölfuss fer fram í Grunnskólanum í Þorlákshöfn í dag, 11. febrúar. Börn úr leik- og grunnskólum taka þátt og ræða um málefni sem snúa að þeirra daglega lífi, velferð og réttindum.

Markmiðið með þinginu er að tryggja að raddir barna heyrist og að þau fái tækifæri til að hafa áhrif á samfélagið sitt í anda Barnasáttmálans.

Nemendur í 10. bekk stýra umræðum og rita niðurstöður í fjölbreyttum málstofum um skólamál, félagslíf og menningu, forvarnir, öryggi og skipulag, auk fjölskyldu- og vinamála.

Niðurstöður þingsins verða teknar saman og nýttar í áframhaldandi stefnumótun sveitarfélagsins.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?