Bryggjugleði við Herjólfshúsið

Bryggjudagar í Herjólfshúsi 2013
Bryggjudagar í Herjólfshúsi 2013
Á laugardaginn verður sannkölluð bryggjugleði við Herjólfshúsið í Þorlákshöfn en þá verður boðið upp á skemmtun fyrir alla fjölskylduna frá klukkan 13.00 – 16.00

Á laugardaginn verður sannkölluð bryggjugleði við Herjólfshúsið í Þorlákshöfn en þá verður boðið upp á skemmtun fyrir alla fjölskylduna frá klukkan 13.00 – 16.00. Meðal þess sem verður á dagskránni er dorgveiðikeppni þar sem veitt verða verðlaun fyrir stærsta fiskinn og humarsmakk í boði útgerðafyrirtækisins Auðbjargar. Þá geta litlir listamenn föndrað í sérstöku listahorni og hægt verður að fylgjast með handverksfólki við vinnu en í sumar er starfræktur handverksmarkaður í Herjólfshúsinu.

Þetta er þriðja sumarið sem í Herjólfshúsinu er starfræktur handverksmarkaður, kaffihús og upplýsingamiðstöð og er það opið alla daga frá 10:00 - 17:00. Reksturinn er í höndum Handverksfélags Ölfuss og það er því auðvitað handverk frá listafólki í sveitarfélaginu sem er miðpunktur starfseminnar en einnig er til sölu humar, kjötvörur beint frá býli, harðfiskur og söl.

Frekari upplýsingar um dagskrá Bryggjugleðinnar er að finna á Facebooksíðu Herjólfshússins. 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?