Búseturéttir á Mánabraut til sölu

Mánabraut 9 og 11 í Þorlákshöfn
Íbúðirnar eru skv. sömu teikningu en um er að ræða 2ja svefnherbergja íbúðir í parhúsi. Í heildina er hvor eign fyrir sig um 122,5 fm. og þar af bílskúr 28,6 fm. Húsin voru byggð árið 2007 og eru staðsett í rólegum og notalegum byggðarkjarna eldri borgara í Þorlákshöfn.

Búseturétturinn kostar 3.000.000 kr. og mánaðargjöldin eru 153.495 kr. og hækka m.v. vísitölu neysluverðs. Innifalið í því er allt nema rafmagn, hiti og fasteignagjöld.

Bæði félagsmenn og utanfélagsmenn geta keypt búseturéttinn en aldursskilyrði eru 60 ára og eldri. Við úthlutun verður horft til þess hve lengi einstaklingar sem sækja um hafa verið í félaginu. Ef engin félagsmaður sækir um verður búseturétturinn seldur til utanfélagsmanna.

Íbúðirnar verða báðar afhentar í apríl 2021 og skulu umsóknir berast félaginu fyrir 4. febrúar nk.

Þeir sem hafa áhuga á að kaupa búseturétt skulu senda inn umsóknir á Sveitarfélagið Ölfus, Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn eða á netfangið olfus@olfus.is. Nánari upplýsingar veitir Sandra Dís Hafþórsdóttir sandradis@olfus.is eða í síma 480-3800.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?