Dagur gegn einelti

8. nóvember Dagur gegn einelti

Dagurinn 8. nóvember er helgaður baráttunni gegn einelti í samfélaginu. 

Dagurinn 8. nóvember er helgaður baráttunni gegn einelti í samfélaginu.  Dagurinn verður haldinn hátíðlegur í þriðja sinn föstudaginn 8. nóvember næstkomandi og er markmiðið með deginum að vekja sérstaka athygli á málefninu og hversu alvarlegt einelti er.  Í tengslum við baráttudaginn 2011 undirrituðu fulltrúar stjórnvalda, sveitarfélaga, félagasamtaka og opinberra stofnana þjóðarsáttmála gegn einelti og lýstu þar með vilja sínum til að leggja þessu málefni lið.  Sáttmálinn er því grunnur að frekari vinnu þeirra sem undirrituðu hann í Höfða 2011.  Hvatt er eindregið til þess að sem flestir undirriti sáttmálann og sýni þar með hug sinn í verki.  Það er hægt að gera rafrænt á heimasíðu verkefnisins.  Slóðin er www.gegneinelti.is og blasir sáttmálinn við á forsíðu vefsins.

 
Stjórnvöld hvetja skóla og aðrar stofnanir, sem og landsmenn alla, til að nýta 8. nóvember til að hugleiða hvernig hægt er að stuðla að jákvæðara samfélagi fyrir alla og beina athyglinni að því að koma í veg fyrir og uppræta það þjóðarböl sem einelti er.  Í ár verður sjónum beint að skólasamfélaginu og þá sérstaklega framhaldsskólum.
 
Að venju mun verkefnastjórn um aðgerðir gegn einelti standa fyrir dagskrá í tilefni dagsins.  Dagskrá dagsins verður auglýst síðar á heimasíðu verkefnisins, www.gegneinelti.is 
 
Í tilefni dagsins munu bjöllur, klukkur og skipsflautur óma í sjó mínútur um allt land frá kl. 13:00 - 13:07, ein mínúta fyrir hvern dag án eineltis.  Skólasamfélagið, vinnustaðir og samfélagið í heild eru hvött til þess að taka höndum saman og helga 8. nóvember baráttunni gegn einelti með einhverjum hætti.  Sýnum samstöðu í verki, skrifum undir þjóðarsáttmálann og hringjum bjöllum kl. 13:00

Nánari upplýsingar um daginn má finna á heimasíðu verkefnisins www.gegneinelti.is
 
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?