Sjómannadagsmessa verður í Þorlákskirkju - blómsveigur lagður að minnisvarðanum Lífsfley
Það verður fjölbreytt dagskrá í kringum höfnina í Þorlákshöfn sjómannadagshelgina 31. maí - 1. júní.
Fjölskyldudagskrá verður á útisviði á Herjólfsbryggju á laugardeginum þar sem m.a. Una Torfa, Lalli töframaður, Solla stirða, Halla hrekkjusvín og fleiri stíga á svið. Skipið Þinganes verður til sýnis fyrir gesti og mun þyrla Landhelgisgæslunnar fjúga yfir svæðið. Margt annað skemmtilegt verður í boði, til dæmis sögusýning, tónleikar, sjómannadagsgleði, hoppukastalar, vöfflusala, hopp í sjóinn og fleira.
Á sjómannadaginn verður t.d. sjómannadagsmessa og - kaffihlaðborð í Versölum.
Sundlaugin verður opin alla helgina.
