Íslensku myndlistarverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Austurbæjarbíói þann 11.mars sl.
Finnbogi Pétursson var valinn myndlistarmaður ársins og tók við verðlaununum úr hendi Loga Einarssonar ráðherra menningarmála. Verðlaunin hlýtur hann fyrir sýninguna Skjálfta í Listasafni Árnesinga.
Sveitarfélagið Ölfus óskar Finnboga og Listasafni Árnesinga innilega til hamingju með viðurkenninguna og stórglæsilega sýningu. Við hvetjum íbúa Ölfuss til heimsækja safnið í Hveragerði. Opnunartími er frá kl. 12 - 17 alla daga nema mánudaga og frítt er inn á safnið.
Listasafn Árnesinga er í eigu Héraðsnefndar Árnesinga, en öll sveitarfélögin í Árnessýslu eiga aðild að henni. Þau eru Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur, Hveragerðisbær, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Sveitarfélagið Árborg og Sveitarfélagið Ölfus.