Fjölskyldan saman í vetrarfríinu

Njótum þess að vera saman í vetrarfríi í Ölfusi

Vetrarfríið gengur í garð og fjölskyldur í Ölfusi eru hvattar til að nýta fríið til samveru. Ölfusið býður upp á fjölbreytt tækifæri – frá göngutúrum og sundferðum í Þorlákshöfn yfir í skapandi verkefni heima og bókasafnsviðburði.

Fjallganga er frábær leið til að hreyfa sig, njóta útivistar og vera saman — hvort sem um er að ræða léttar göngur á nærliggjandi hæðir eða lengri leiðir fyrir ævintýragjarna til dæmis í heita lækinn í Reykjadal.

Markmiðið er að hvetja íbúa til að hægja á, njóta samveru og skapa góðar minningar án mikils kostnaðar. Vetrarfríið er kjörin stund til að styrkja fjölskyldubönd og upplifa einfaldar stundir saman.

Bókasafnið í Þorlákshöfn býður uppá fjölbreytt verkefni og lengri opnun á mánudaginn en hefðbundin opnun er á þriðjudag kl. 12-17. 
Sjá nánar:

Hér má finna fleiri hugmyndir að samveru og verkefnum:

Góða skemmtun 

Fjölskyldu og fræðslusvið Ölfuss

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?