Foreldramorgnar á bókasafninu í vetur

Góð samvera foreldra og barna bý til góðar minningar
Góð samvera foreldra og barna bý til góðar minningar

Foreldramorgnar á Bæjarbókasafninu

Bæjarbókasafnið vill auka fjölbreytni í þjónustu sinni og skapa notalegan vettvang þar sem fólk getur hist, spjallað, fræðst og notið samveru.

Í vetur verður því boðið upp á Foreldramorgna á föstudögum frá kl. 10:00–12:00. Foreldrar og verðandi foreldrar eru hjartanlega velkomnir að líta við, hitta aðra og eiga góða stund saman.

Á Foreldramorgnum verða jafnframt reglulega í boði ýmis fræðsluerindi og örnámskeið um málefni sem tengjast foreldrahlutverkinu, börnum og fjölskyldulífi. Dagskráin verður fjölbreytt og kynnt jafnóðum.

Fyrsti Foreldramorgunn vetrarins verður föstudaginn 2. október.

☕ Heitt verður á könnunni og áhersla lögð á notalegt og afslappað andrúmsloft.

Kíkið við, njótið samverunnar og eigið góðan morgun með okkur á Bæjarbókasafninu!

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?