Framkvæmdir að hefjast við nýjan þjónustukjarna öldrunarheimilis við Egilbraut 9

Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss og Þorvaldur Garðarsson eigandi Hrímgrundar ehf.
Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss og Þorvaldur Garðarsson eigandi Hrímgrundar ehf.

Fyrr í dag skrifuðu þeir Elliði Vignsson bæjarstjóri og Þorvaldur Garðarson eigandi Hrímgrundar undir Verksamning um byggingu þjónustukjarna Öldrunarheimilis við Egilsbraut 9 í Þorlákshöfn. Um er að ræða tæplega 150 m2 stækkun á núverandi húsnæði, ætlað til að bæta verulega þjónustu dagdvalar. Með tilkomu hinnar nýju dagdeildar verður bæði hægt að fjölga verulega þjónustuþegum og efla þjónustu. Samhliða framkvæmdinni verður ráðist í endurgerð dagstofu, tómstundarýmis og fl.

Samningurinn við Hrímgrund hljóðar upp á rúmlega 170 milljónir og mun verkið hefjast á næstu dögum. Verklok eru áætluð 1. ágúst á næsta ári.

Nían

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?