Bæjarráð Sveitarfélagsins Ölfuss samþykkti á fundi í dag að frá og með næstu mánaðamótum verði leikskólar sveitarfélagsins gjaldfrjálsir.
Ákvörðunin felur í sér að öllum börnum býðst allt að 36 klukkustunda leikskóladvöl á viku án gjaldtöku, óháð tekjum foreldra. Ákvörðunin er tekin á grundvelli sterkrar fjárhagsstöðu og jákvæðrar rekstrarþróunar undanfarin ár.
Samkvæmt útkomuspá fyrir árið 2025 er gert ráð fyrir 1.346 milljóna króna jákvæðri rekstrarniðurstöðu. Íbúar í sveitarfélaginu eru nú rúmlega 3.000 og hefur þeim fjölgað 4% til 6,5% ári seinustu ár.
Með ákvörðuninni hyggst sveitarfélagið styðja við barnafjölskyldur og láta góðan rekstrarárangur skila sér í aukinni þjónustu við íbúa.