Friðarhlaup í Þorlákshöfn

fridarhlaup 2013
fridarhlaup 2013
Friðarhlaupið kom til Þorlákshöfn um síðustu helgi
Dagana 20.júní - 12. júlí verður hlaupið Friðarhlaup um allt Ísland. Hlaupið verður í Þorlákshöfn á morgun, laugardag og plantað friðartré í skrúðgarðinum.

Hlaupið var til friðar í Ölfusi síðastliðinn laugardag og gróðursett friðartré í skrúðgarðinum

 
Dagana 20.júní - 12. júlí er hlaupið Friðarhlaup um allt Ísland. Alþjóðlegur hópur hlaupara ber logandi Friðarkyndil á milli byggða svo allir hafi tækifæri á að taka þátt í viðburði sem hefur að leiðarljósi hugsjónir sáttar og samlyndis.  Friðarhlaupið  er alþjóðlegt kyndilboðhlaup sem fer fram í öllum heimsálfum ár hvert. Hlaupið er kennt við indverska friðarfrömuðinn Sri Chinmoy (1931-2007) sem m.a. opnaði íslenska Friðarhlaupið árið 1989.
 
Ísland hefur tekið þátt í Friðarhlaupinu frá upphafi þess árið 1987 og í ár verður hlaupið í 20. sinn.

Verkefnið “leggjum rækt við frið” fer fram samhliða Friðarhlaupinu, en það gengur út á að sveitarfélög gróðursetji tré sem er tileinkað friði. Friðartrén minna á að rétt eins og við þurfum að hlúa að og leggja rækt við trjáplöntuna svo hún megi vaxa og dafna, þurfum við að hlúa að og leggja rækt við friðinn í sjálfum okkur og samfélaginu.

Friðarhlaupið kom til Þorlákshafnar laugardaginn 22. júní sl. Hlaupið var inn í skrúðgarðinn þar sem friðartréð var gróðursett.

Meðfylgjandi myndir tók Jóhanna Hjartardóttir.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?