Fyrsti fundur Unglingalandsmótsnefndar

Framkvæmdanefnd Unglingalandsmóts 2018
Framkvæmdanefnd Unglingalandsmóts 2018

Í gær kom Unglingalandsmótsnefnd 2018 saman í Þorlákshöfn á sínum fyrsta fundi. Unglingalandsmót 2018 verður haldið í Þorlákshöfn um Verslunarmannahelgina, tíu árum eftir að fyrsta Unglingalandsmót var haldið í Þorlákshöfn árið 1008.

Í gær kom Unglingalandsmótsnefnd 2018 saman í Þorlákshöfn á sínum fyrsta fundi. Unglingalandsmót 2018 verður haldið í Þorlákshöfn um Verslunarmannahelgina, tíu árum eftir að fyrsta Unglingalandsmót var haldið í Þorlákshöfn árið 2008.

Nefndina skipa þau Anna Júlíusdóttir, Sveitarfélaginu Ölfusi, Eyrún Hafþórsdóttir, formaður UMF Þórs frá Sveitarfélaginu Ölfusi, Guðbjörg Heimisdóttir, Sveitarfélaginu Ölfusi, ritari nefndarinnar, Ragnar M. Sigurðsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrú frá Sveitarfélaginu Ölfusi, Gunnsteinn R. Ómarsson, Sveitarfélaginu Ölfusi, formaður nefndarinnar, Guðríður Aadnegard, HSK, formaður HSK, Helgi S. Haraldsson, HSK, Guðmundur Jónasson, HSK og Örn Guðnason, UMFÍ.

Auk þess starfa með nefndinni Engilbert Olgeirsson, framkvæmdastjóri HSK og Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi UMFÍ og framkvæmdastjóri landsmóta UMFÍ.

 Myndina tók Engilbert Olgeirsson en aðrir sem upp eru taldir eru á myndinni.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?