Garðaþjónusta fyrir eldra fólk í Ölfusi

Síðastliðið vor urðu breytingar á garðsláttarþjónustu í Ölfusi og settar voru reglur um garðaþjónustu fyrir ellilífeyris- og örorkulífeyrisþega

Markmiðið með reglunum var að koma til móts við ellilífeyris- og örorkulífeyrisþega sem eru með 75% örorku og geta ekki hjálparlaust hirt lóðir sínar. Um leið var horft til þess að útfæra þjónustuna þannig að undir garðaþjónustu flokkast sláttur og hreinsun grasflatar, snyrting limgerða ásamt beðahreinsunum.

Útfærsla þjónustunnar:

  1. Þjónustuþegar leita sjálfir til þeirra þjónustuaðila sem bjóða upp á garðaþjónustu og sjá um skipulagningu og greiðslur til viðkomandi fyrirtækis. Í kjölfarið er sótt um niðurgreiðslu til sveitarfélagsins.
  2. Tímabil niðurgreiðslu gildir frá 15. maí - 30. september ár hvert.
  3. Hámarksupphæð niðurgreiðslu nemur kr. 50.000 á ári.

Réttur til niðurgreiðslu á þjónustu:
Rétt til niðurgreiðslu á garðaþjónustu eiga ellilífeyris- og örorkulífeyrisþegar með 75% örorku og hafa lögheimili í Sveitarfélaginu Ölfusi. Réttur til niðurgreiðslu skapast aðeins ef viðkomandi hefur mánaðarlega framfærslu undir eftirfarandi upphæðum sem taka mið af framfærslu Tryggingastofnunar ríkisins:

Árið 2026:

  • Einstaklingur kr. 542.086
  • Hjón eða sambýlisfólk kr. 865.471

Umsóknarferli og fylgigögn
Umsókn um niðurgreiðslu á garðaþjónustu má nálgast í íbúa og þjónustugátt á heimasíðu Ölfuss.

Með umsókn þarf að skila inn kvittun vegna kaupa á þjónustu og nýjasta skattframtali viðkomandi. Einnig þarf staðfestingu á örorku þegar við á.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?