Garðlönd og vinnuskólinn

Merki Ölfuss
Merki Ölfuss
Garðlönd og vinnuskólinn
Garðlönd verða starfrækt í sumar og skráning í vinnuskóla Ölfuss er hafin!

Garðlönd

Garðlöndin verða starfrækt í sumar á sama stað og í fyrra, sunnan við Finnsbúð / norðan við íþróttavellina. Þar er aðgengi að vatni gott svo auðvelt er að vökva. Hver reitur verður um 25m2 og verða þeir tilbúnir til niðursetningar 17. maí. Umsóknarfrestur er til og með 13. maí. Nú er um að gera að fá sér garð og rækta sitt eigið grænmeti og kartöflur.

Þeir sem hafa áhuga á að fá sér garð hafi sambandi við umhverfisstjóra david@olfus.is  eða í síma 899-0011.

 

 

Vinnuskóli Ölfuss

Skráning í vinnuskóla Ölfuss er hafin!

Skráningablöð fást á heimasíðu og á bæjarskrifstofu Ölfuss.

Vinnuskólinn verður starfræktur frá 8. júni til 29.júlí

Mæting í Svítuna miðvikudaginn 8.júni kl. 8.00

Í sumar munum við taka nokkra daga frá og blanda saman fræðslu og skemmtun.

Hægt er að nálgast reglur vinnuskólans á heimasíðu sveitarfélagsins www.olfus.is

Síðasti skráningadagur er þriðjudagurinn 31. maí n.k

Við skráningu í Vinnuskólann er litið svo á að unglingur sé að sýna áhuga á að taka þátt í starfi skólans

og samþykki reglur hans.

Nánari upplýsingar á heimasíðu sveitarfélagsins www.olfus.is  

eða hjá umhverfisstjóra david@olfus.is  eða í síma 899-0011.

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?