Gjöf til bókasafnsins

Bókasafninu var í dag færð gjöf, ríflegt gjafakort sem ætlað er til að kaupa spil í spiladeild safnsins.
Það voru þær Jóna og Ingveldur sem afhentu gjafakortið fyrir hönd kortagerðarkvenna á Níunni. Starfskona safnsins er meyr yfir þessari velvild og hefur þegar pantað spil fyrir upphæðina.
 
Hjartans þakkir til ykkar kortagerðarkonur og við minnum á að falleg handunnin kort eru alltaf til sölu á Níunni.
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?