Göngum í skólann

Göngum í skólann
Göngum í skólann

Verkefninu "Göngum í skólann" verður hleypt af stokkunum í áttunda sinn 10. september næstkomandi.

Verkefninu "Göngum í skólann" verður hleypt af stokkunum í áttunda sinn 10. september næstkomandi og lýkur því formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum miðvikudaginn 8. október. Markmið verkefnisins eru að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.

Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskautar og hjólabretti. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.

Á síðasta ári tóku milljónir barna frá yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann. Hér á landi hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt en fyrsta árið voru þátttökuskólarnir 26 en 64 skólar skráður sig til leiks árið 2013.

Nú þegar skólinn fer að hefja vetrarstarf og enn er sumartíð, er ekki úr vegi að taka þátt í þessu verkefni og hvetja börnin til að ganga í skóla og leikskóla.

Nánari upplýsingar um virkan ferðamáta og umferðarfræðslu má m.a. finna í Handbók um hreyfingu fyrir grunnskóla, sem Embætti landlæknis gefur út og í Handbók í umferðarfræðslu sem Samgöngustofa gefur út. Hægt er að nálgast bækurnar rafrænt á síðunum www.umferd.is og www.landlaeknir.is.

Á heimasíðu Göngum í skólann www.gongumiskolann.is eru allar nánari upplýsingar. Þar má m.a. finna skemmtilegar útfærslur nokkurra skóla á Íslandi á verkefninu.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?